Fótbolti

Sjáðu magnað mark Orra Steins á Laugar­dals­velli

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Daníel Leó Grétarsson og markvörður Tyrklands.
Daníel Leó Grétarsson og markvörður Tyrklands. Vísir/Hulda Margrét

Ísland er undir gegn Tyrklandi í leik liðanna í Þjóðadeild karla í fótbolta. Staðan á Laugardalsvelli þegar þetta er skrifað er 1-2. Mörk leiksins sem og helstu færi má sjá hér að neðan.

Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi yfir með frábæru marki strax í upphafi leiks. Mikael Andersson átti sendingu á Orra Stein sem var við miðlínu, hann hélt varnarmanni gestanna á bakvið sig og óð að marki. Endaði það með því að hann lúðraði boltanum upp í þaknetið af stuttu færi og kom Íslandi 1-0 yfir.

Klippa: Orri skorar fyrir Ísland

Orri Steinn var nálægt því að tvöfalda forystu Íslands í fyrri hálfleik en tókst ekki að koma knettinum í netið að þessu sinni.

Klippa: Orri í hörkufæri

Vinstri bakvörðurinn Logi Tómasson átti svo þrumuskot og var nálægt því að skora annan leikinn í röð. Allt kom fyrir ekki en íslenska liðið gríðarlega nálægt því að komast 2-0 yfir áður en fyrri hálfleik lauk.

Klippa: Logi með þrumuskot

Í síðari hálfleik fengu gestirnir vítaspyrnu en þó boltinn hafi endaði í netinu þá stóð markið ekki þar sem  Hakan Çalhanoğlu rann er hann sparkaði boltanum með hægri fæti í þann vinstri og þaðan í netið.

Klippa: Laugardalsvöllur bjargar Íslandi

Ekki löngu síðar jöfnuðu gestirnir hins vegar metin, İrfan Kahveci með gott skot af löngu færi sem endaði í netinu.

Klippa: Tyrkir jafna í Laugardal

Það voru ekki liðnar margar mínútur þegar gestirnir komust yfir eftir að hafa fengið aðra vítaspyrnu sína í leiknum. Nú brást Hakan Çalhanoğlu ekki bogalistin.

Klippa: 1-2 fyrir Tyrkland

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×