Lífið

Frum­sýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óska­land

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Leikstjórn er í höndum Hilmis Snæs.
Leikstjórn er í höndum Hilmis Snæs.

Vísir frumsýnir hér glænýja stiklu úr sýningunni Óskaland í tilefni af frumsýningu leikritsins á Stóra sviði Borgarleikhússins. Óskaland er fyndin og hjartnæm sýning um fjölskylduflækjur og kynslóðabil. Leikstjórn er í höndum Hilmis Snæs Guðnasonar.

Óskaland er eftir bandaríska verðlaunaskáldið Bess Wohl og hefur hlotið frábærar móttökur áhorfenda frá því það var frumsýnt á Broadway.

Klippa: Óskaland

Áhorfendur fá að kynnast hjónunum Nönnu og Villa, leiknum af hinum ástsælu Eggerti Þorleifssyni og Sigrúnu Eddu Björnsdóttur. Eftir 50 ára hjónaband er lífið í föstum skorðum en eitt kvöldið bregður hressilega út af vananum þegar Nanna óskar eftir skilnaði og Villi samþykkir vafningalaust! Það geta synir þeirra hjóna ekki sætt sig og mæta á svæðið, ásamt eiginkonu annars þeirra, til að telja þeim hughvarf. „Gamalt fólk skilur ekki, ætti að vita betur og ekki að vera með vesen“. Eru þau hvort eða er ekki of gömul til að vera að spá í ást og hamingju?

Úrvalslið leikara

Hilmir Snær fær hér til liðs við sig sannkallaðan úrvalshóp leikara. Með Eggerti og Sigrúnu Eddu á sviðinu eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, sem lengi hefur verið ein fremsta gamanleikkona landsins, Jörundur Ragnarsson, Vilhelm Neto, Esther Talía Casey og Fannar Arnarsson sem stígur hér sín fyrstu skref á Stóra sviði Borgarleikhússins með kraftmikilli frammistöðu.

Sviðsumgjörðin styður einstaklega vel við verkið en leikmyndin er eftir Börk Jónsson, búningar hannaðir af Urði Hákonardóttur og tónlistin samin af Móses Hightower sem hefur af því tilefni gefið út lagið Óskaland sem nálgast má á öllum helstu tónlistarveitum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×