Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. september 2024 16:37 Anura Kumara Dissanayake veifar stuðningsmönnum sínum eftir að niðurstöður kosninganna voru kunngjörðar. AP/Rajesh Kumar Singh Marxistinn Anura Kumara Dissanayake var kjörinn forseti Srí Lanka í gær eftir aðra umferð forsetakosninga þar í landi.
Enginn frambjóðandi náði meira en helmingi atkvæði í fyrstu umferð kosninganna. Dissanayake hlaut 42,32 prósent, Sajith Premadasa sem er leiðtogi stjórnarandstöðunnar hlaut 32,76 prósent og Ranil Wickremesinghe, sitjandi forseti, hlaut aðeins sautján prósent atkvæða. Því var farið í aðra umferð þar sem valið var á milli tveggja efstu frambjóðenda og annað og þriðja val kjósenda var talið með. Þar endaði Dissanayake með 5.740.179 atkvæði á móti 4.530.092 atkvæðum Premadasa. Neyðarlán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í brennidepli Kosningarnar voru þær fyrstu frá 2022 þegar þáverandi forseti Gotabaya Rajapaksa hrökklaðist úr embætti í kjölfar mikilla mótmæla vegna krappra kjara og efnahagskrísu landsins. Efnahagsmál hafa verið í brennidepli í kosningabaráttunni og sérstaklega skilyrði neyðarláns sem ríkið tók hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðinum. „Sigurinn tilheyrir okkur öllum,“ sagði Dissanayake í færslu á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) eftir kosningasigurinn. Fram að þessum kosningum allir átta forsetar Srí Lanka frá 1982 hrósað sigri eftir fyrstu umferð. Kosningarnar eru því sögulegar að því leyti að aldrei hefur verið jafn mjótt á munum.
Srí Lanka Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Sjá meira