Carini vill biðja Khelif afsökunar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2024 23:30 Angela Carini stígur út úr hringnum eftir bardagann gegn Imane Khelif. getty/Richard Pelham Ítalska hnefaleikakonan Angela Carini, sem bað um að bardagi sinn á Ólympíuleikunum gegn hinni alsírsku Imane Khelif yrði stöðvaður eftir aðeins 46 sekúndur, vill nú biðja hana afsökunar á framferði sínu.
Eftir að hafa fengið tvö högg frá Khelif bað Carini um að bardaginn yrði stöðvaður. Hún heyrðist segja „þetta er ekki réttlátt“ áður en Khelif var úrskurðuð sigurvegari bardagans og í kjölfarið brotnaði sú ítalska niður í hringnum. Þátttaka Khelifs á Ólympíuleikunum er ekki óumdeild því henni var meinuð þátttaka á heimsmeistaramótinu í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf Alþjóðahnefaleikasambandsins (IBA) sem skipuleggur HM. IBA kemur hins vegar ekki lengur að skipulagningu hnefaleikakeppninnar á Ólympíuleikunum þar sem Khelif má keppa. Alþjóðaólympíunefndin hefur gagnrýnt útilokun Khelifs frá HM harðlega. Í viðtali eftir bardagann sagðist Carini sagðist aldrei hafa verið slegin jafn fast og af Khelif. „Ég er niðurbrotin,“ sagði Carini eftir bardagann en The Guardian greinir frá. „Ég steig inn í hringinn til þess að heiðra minningu föður míns. Ég hef oft fengið að heyra að ég sé stríðskona en ég ákvað að hætta keppni heilsu minnar vegna. Ég hef aldrei verið slegin svona áður. Ég steig inn í hringinn til þess að berjast. Ég gafst ekki upp en eitt höggið særði mig of mikið þannig að ég ákvað að hætta. Ég fer héðan og get borið höfuðið hátt.“ Carini sér greinilega eftir því hvernig hún lét eftir bardagann í gær, miðað við viðtal við hana í Gazzetta dello Sport. Þar sagðist hún vilja biðja Khelif afsökunar á að hafa ekki tekið í höndina á henni eftir bardagann. „Allt þetta mál hryggir mig. Mér þykir þetta líka leitt fyrir andstæðing minn. Ef IOC segir að hún megi berjast ber ég virðingu fyrir því.“ „Þetta var ekki eitthvað sem ég ætlaði að gera. Raunar vil ég biðja hana og alla afsökunar. Ég var reið því Ólympíuleikarnir mínir höfðu fuðrað upp.“ Carini sagði að hún myndi heilsa Khelif ef þær mættust aftur í hringnum. Í átta manna úrslitum í veltivigt á Ólympíuleikunum mætir Khelif Önnu Luca Hámori frá Ungverjalandi. Bardagi þeirra fer fram á morgun.
Box Ólympíuleikar 2024 í París Tengdar fréttir Hin sem féll á kynjaprófinu á HM vann einnig Hin taívanska Lin Yu-ting, sem var vísað úr keppni á HM í hnefaleikum í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf, vann fyrsta bardaga sinn á Ólympíuleikunum í París. 2. ágúst 2024 18:15 Utan vallar: Þegar mektarfólk lætur sig kvennaíþróttir varða Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum. 2. ágúst 2024 11:46 Næsti andstæðingur Khelifs ætlar að berjast allt til enda: „Ég vil bara vinna“ Óhætt er að segja að hin alsírska Imane Khelif hafi verið mikið milli tannanna á fólki eftir hnefaleikabardaga hennar á Ólympíuleikunum í París í gær. 2. ágúst 2024 07:00 Ólympíuefndin skýtur föstum skotum á hnefaleikasambandið Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Imane Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag. 1. ágúst 2024 22:07 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira
Hin sem féll á kynjaprófinu á HM vann einnig Hin taívanska Lin Yu-ting, sem var vísað úr keppni á HM í hnefaleikum í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf, vann fyrsta bardaga sinn á Ólympíuleikunum í París. 2. ágúst 2024 18:15
Utan vallar: Þegar mektarfólk lætur sig kvennaíþróttir varða Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum. 2. ágúst 2024 11:46
Næsti andstæðingur Khelifs ætlar að berjast allt til enda: „Ég vil bara vinna“ Óhætt er að segja að hin alsírska Imane Khelif hafi verið mikið milli tannanna á fólki eftir hnefaleikabardaga hennar á Ólympíuleikunum í París í gær. 2. ágúst 2024 07:00
Ólympíuefndin skýtur föstum skotum á hnefaleikasambandið Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Imane Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag. 1. ágúst 2024 22:07