Bændur í Skorradal eru meðal þeirra bænda á Vesturlandi sem hafa ekkert getað slegið í sumar vegna veðurfars og vætutíðar. Túnin eru hins vegar tilbúin í slátt. Pétur Davíðsson sauðfjárbóndi á Grund í Skorradal er svartsýnn á að það takist að slá á næstunni.
„Núna eftir rigningarnar og hlýindin í síðustu viku er eiginlega allt orðið klárt fyrir slátt en það stefnir ekkert í heyskap næstu vikurnar sýnist mér samkvæmt veðurspá,“ segir Pétur.
Túnin þurfi að vera þurr þegar sláttur fer fram. Veðurspá gerir hins vegar ráð fyrir einhverri vætutíð á hverjum degi á næstunni. Pétur segir þetta bagalegt nú sé hárréttur tími til að slá.
Afar óvenjulegt
„Það er allt orðið sprottið og skriðið og tilbúið. Best væri að slá núna því nú er næringargildi grassins er mest. Fræin eru komin á grösin og eftir það þá fara þau að tréna og þá tapa þau fóðurgildinu sínu hægt og bítandi. Það gerist svo enn hraðar ef það sprettur enn meira. Þetta þýðir það að maður fær verra fóður þegar loksins verður hægt að slá,“ segir Pétur
Pétur segir þetta afar óvenjulegt tíðarfar.
„Ég er venjulega löngu byrjaður að slá en miðað við veðurspánna þá er það ekkert í kortunum fyrr en í ágúst. Ég man ekki eftir öðru eins í minni búskapartíð,“ segir hann.
Aðspurður hvort hann hafi eitthvað reynt að kvarta við veðurguðina svarar Pétur:
„ Nei ekki enn þá. Maður verður bara að taka þessu með ró,“ segir hann að lokum.