Lífið

Lækkuðu hita­stigið fyrir leður­klædda kvikmyndaáhugamenn

Lovísa Arnardóttir skrifar
IMG_1415_smarabio_sniglar

Smárabíó bauð upp á sérstaka snigla sýningu í gærkvöldi á mótorhjólamyndina Bikeriders. Um það bil 70 meðlimir Sniglanna komu í hópkeyrslu á sýninguna klædd í leðurföt og með hjálma. 

Ólafur Þórisson markaðsstjóri Smárabíós segir að stemningin hafi verið afar góð þegar bíóið fylltist af leðurklæddu hjólafólki.

Nóg af hjólum og nóg af leðri.Aðsend

„Smárabíó ákvað að taka sérstak tillit til þeirra sem komu á sýninguna með því að lækka hitastigið í salnum til að öllum liði þægilega í leðurgöllunum í salnum. Það var mikill leður og mótorhjólalykt í loftinu eftir að myndinni lauk og hjóluðu Sniglarnir út í sólarlagið með bros á vör og eitthvað popp í tönnum,“ segir Ólafur.

Poppið og kókið ómissandi.Aðsend
Flottar Sniglakonur.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.