„Þetta er breyting sem er ekki í takt við lögin“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. júní 2024 20:00 Meðal annars stendur til að hefja gjaldtöku á bílastæðunum við flugvöllinn á Egilsstöðum. Vísir/Vilhelm Hæstaréttarlögmaður efast um lögmæti gjaldtöku á bílastæðum við innanlandflugvelli. Slíkt feli í sér möguleg brot á jafnræðisreglu og meiriháttar stefnubreytingu sem kalli á aukna pólitíska umræðu. Fátt virðist koma í veg fyrir að gjaldtaka hefjist á bílastæðum við þrjá innanlandsflugvelli á næstu dögum, en nýtt útspil fjármálaráðherra tefur málið.
Líkt og fram hefur komið í fréttum ríkir óvissa um hvenær hægt verður að hefja gjaldtöku á bílastæðum við flugvellina í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Áformin hafa mætt töluverðri andstöðu meðal íbúa á Norður- og Austurlandi og var henni frestað í vetur, en til stóð síðan að hefja gjaldtöku í þessari viku. Jón Jónsson, hæstaréttarlögmaður hjá lögmannsstofunni Sókn, vann lögfræðiálit um fyrirhugaða gjaldtöku fyrir sveitarfélagið Múlaþing. Hann telur að þegar Isavia kynnti um áformin hafi nauðsynleg skilyrði ekki verið til staðar. Samþykki ráðherra hafi ekki verið fyrir hendi né leyfi samkvæmt umferðarlögum til að ráðast í gjaldtöku. „Þetta hefur vantað og verið þá nokkuð skírt í mínum huga að gjaldtakan samræmdist ekki lögum,“ segir Jón. „Lögin sem gilda um uppbyggingu og rekstur flugvalla þau aðgreina annars vegar uppbyggingu og hins vegar rekstur. Og lögin gera ráð fyrir því að Isavia vinni að rekstri, en maður er að sjá það að þetta eru bara hrein uppbyggingarverkefni. Hingað til hefur ríkið, og á samkvæmt lögum, að standa að uppbyggingu og rekstri flugvallanna. Ríkið fær almennt skattfé í það og hefur hingað til veitt fé af fjárlögum í uppbyggingu þannig að þetta er ákveðin grundvallarbreyting ef það á að fara að taka gjöld beint af notendum flugvallanna, farþegum, til þess að fara í uppbyggingu,“ útskýrir Jón. Jón Jónsson, hæstaréttarlögmaður hjá lögmannsstofunni Sókn, vann lögfræðiálit um málið fyrir Múlaþing.Mynd/aðsend Hann efist enn um lögmæti áformanna, þrátt fyrir að endurnýjaður þjónustusamningur milli Isavia og innviðaráðuneytisins hafi nú einnig verið undirritaður af fjármálaráðherra. Standist ekki jafnræðissjónarmið En Jón gerir fleiri athugasemdir. „Ef að það á að taka upp bílastæðagjöld á þremur innanlandsflugvöllum af tíu eða ellefu sem Isavia sér um þá orkar það tvímælis út frá jafnræðissjónarmiðum,“ segir Jón. Hann kallar eftir aukinni pólitískri umræðu um gjaldtöku. Fjármála- og samgönguáætlanir hafi til þessa gert ráð fyrir að ríkið standi straum af kostnaði við uppbyggingu flugvalla. „Það hefur átt við um flugstöðvarnar, það hefur líka átt við hingað til um lóðirnar. Þannig að þetta er breyting sem er ekki í takt við lögin og er klárlega mjög stór stefnubreyting miðað við samgönguáætlun ef það á að fara að hefja bílastæðagjaldtöku á sumum innanlandsflugvöllum en öðrum ekki,“ segir Jón. Hann telur líklegt að látið verði reyna á lögmæti gjaldtökunnar komi hún til framkvæmda. „Þetta verður mikil röskun á notkun flugvallanna þannig að fólk mun örugglega láta reyna á þetta.“ Þangað til í dag kom vöntun á undirskrift Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra í veg fyrir að gjaldtaka gæti hafist. Nú hefur ráðuneyti Sigurðar Inga einnig skrifað undir en ráðherrann hefur beint þeim tilmælum til Isavia ohf. að það beiti sér fyrir því við dótturfyrirtækið Isavia innanlands ehf. að gjaldtakan nái ekki til flugfarþega sem þurfi að sækja heilbrigðisþjónustu og fljúga aftur til baka sama dag. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia innanlands tefur þetta útspil ráðherrans enn frekar fyrir gjaldtökunni, enda sé það flókið í framkvæmd að haga gjaldtöku eftir því í hvaða erindagjörðum fólk nýti flugsamgöngur. Málið verði til umfjöllunar hjá stjórn félagsins á morgun og í framhaldinu komi í ljós hvort hægt verði að hefja gjaldtöku í vikunni. Það verði í fyrsta lagi á fimmtudaginn.
Akureyrarflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Egilsstaðaflugvöllur Bílastæði Samgöngur Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira