Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. maí 2024 18:37 Kári Jónsson verður í leikmannahópi Vals í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Deildarmeisturum Vals hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur fyrir úrslitaeinvígi Subway-deildar karla í körfubolta sem hefst nú í kvöld. Kári Jónsson, sem hefur verið meiddur undanfarna mánuði, er snúinn aftur í leikmannahóp liðsins.
Frá þessu var greint í upphituninni fyrir leik Vals og Grindavíkur sem hefst eftir rétt um hálftíma, en Valsliðið hefur þurft að reiða sig af án Kára frá því snemma móts. Kári hefur verið einn af bestu leikmönnum deildarinnar undanfarin ár. Hann náði þó aðeins fjórum deildarleikjum með Valsliðinu á yfirstandandi tímabili þar sem hann skilaði 11,8 stigum að meðaltali í leik, ásamt því að gefa 3,5 stoðsendingar og taka 2,8 fráköst. Kári lék síðast deildarleik með Valsliðinu þann 10. nóvember á síðasta ári þegar Valur vann 124-127 sigur gegn Haukum í ótrúlegum tvíframlengdum leik. Mánuði síðar sendi körfuknattleiksdeild Vals svo frá sér tilkynningu þar sem greint var frá því að Kári yrði frá keppni næstu mánuðina. Í tilkynningunni kom hins vegar ekki fram hvenær Kári myndi snúa aftur, en nú er orðið ljóst að þessi öflugi leikmaður er að verða klár í slaginn og óhætt er að segja að tímasetninginn fyrir Valsmenn gæti varla verið betri. Úrslitaeinvígi Vals og Grindavíkur hefst í kvöld klukkan 19:15 og verður leikurinn að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn er þegar hafin. Kári Jónsson hitar upp fyrir leik kvöldsins.
Subway-deild karla Valur Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Fleiri fréttir Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Sjá meira