Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Sindri Sverrisson skrifar 12. maí 2024 16:23 Orri Steinn Óskarsson lagði upp mark gegn Bröndby í dag. Getty/Ulrik Pedersen Eftir fjóra sigra í röð hefur FC Kaupmannahöfn laumað sér, nánast „bakdyramegin“ upp í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.
FCK vann erkifjendur sína í Bröndby á útivelli í dag í spennuþrungnum leik, 3-1, og Orri Steinn Óskarsson var með í því. Bröndby skoraði fyrsta markið eftir hálftíma leik, en FCK jafnaði fljótt og átti Orri stóran þátt í því þegar hann lagði boltann á Kevin Diks sem skoraði. Mohamed Elyounoussi kom FCK svo yfir á 54. mínútu og þannig var staðan þar til seint í uppbótartíma þegar Kevin Tshiembe hjá Bröndby var rekinn af velli með rautt spjald, og Diks bætti við marki úr vítaspyrnu sem dæmd var. Úrslitaleikur á fimmtudaginn? Sigurinn fleytti FCK upp fyrir Bröndby og á topp deildarinnar þar sem FCK er nú með 58 stig, tveimur meira en Bröndby og þremur meira en Midtjylland sem nú á í höggi við AGF. Markatala FCK er tíu mörkum betri en Midtjylland. Næsti leikur gæti ráðið úrslitum í titilbaráttunni en FCK og Midtjylland, með Sverri Inga Ingason innanborðs, mætast á fimmtudaginn. Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekk FCK í dag og bíður enn eftir fyrsta leik sínum fyrir liðið.
Danski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira