„Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum 17 sortir 10. maí 2024 12:29 „Mér persónulega finnst æðislegt að halda upp á hann og reyni alltaf að færa mömmu eitthvað fallegt í tilefni dagsins,“ segir Sylvía Haukdal en hún og Auður Ögn reka sælkerabakaríið 17 sortir. Mæðradagurinn er á sunnudag og sælkerarnir í 17 sortum bjóða nú upp á dásamlega mæðradagskassa og auðvitað mæðradagsköku í verslunum Hagkaup á höfuðborgarsvæðinu. „
Í fyrra höfðum við ekki undan að framleiða mæðradagsvörur, þær voru svo fljótar að klárast þannig í ár reynum við okkar besta að framleiða meira. Mæðradagurinn hefur farið stækkandi með hverju árinu og mér persónulega finnst æðislegt að halda upp á hann og reyni alltaf að færa mömmu eitthvað fallegt í tilefni dagsins“ segir Sylvía Haukdal en hún og Auður Ögn reka sælkerabakaríið 17 sortir. Þær eru báðar forfallnir sælkerar og ekki sykurlausa örðu að finna í bakaríinu þeirra. Dásamlega sætir kassar fyrir mömmu. „Okkar sérsvið liggur meira í sætindum,“ segir Sylvía sposk. „Við erum báðar miklir sælkerar þegar kemur að eftirréttum og mat, elskum að skoða ný bakarí og veitingastaði og smakka allskonar. Auður er duglegri þegar kemur að eldamennsku og ég hef enn ekki smakkað neitt vont sem hún eldar. Svo er mín sterkari hlið baksturinn og eftirréttirnir. Vinsælasta kakan okkar er karamellubotnar með saltkaramellu og daim, einhver klassík sem fólk er alltaf ánægt með,“ segir Sylvía. Bragðlaukar fólks séu þó móttækilegir fyrir tískubylgjum. „Bragðtegundir ótrúlega breytilegar og það koma annað slagið tískubylgjur. Til dæmis voru þristakökur mjög vinsælar á tímabili og eru reyndar enn. Pantanirnar sem við fáum geta verið alveg ótrúlega fjölbreyttar,“ segir Sylvía en þær Auður rigga upp skemmtilegum og sykursætum kökum fyrir fyrirtæki, afmæli, nafnaveislur, brúðkaup, gæsanir, fermingar, útskriftir og fl. Mæðradagurinn er á sunnudaginn og 17 sortir bjóða upp á sætar gjafir. „Óvenjulegasta kakan sem við gerðum var fyrir þorrablót og var þemað lömbin þagna, sú kaka skartaði þessum fína pung hangandi aftan á kökunni sem vakti mikla lukku.“ Saga 17 sorta spannar hátt í áratug en Auður Ögn opnaði 17 sortir árið 2015 úti á Granda. Sylvía varð meðeigandi 2022 þegar 17 sortir færðu bakaríið yfir í Hagkaup í Smáralind og hóf að selja vörurnar í verslunum Hagkaup á höfuðborgarsvæðinu. Þær Auður Ögn og Sylvía Haukdal kunna að dekstra bragðlaukana. „Það munar svo miklu að vera tvær saman í þessu að geta stutt við hvor aðra og tekið frí án þess að hafa áhyggjur. Við erum ótrúlega gott teymi, passlega líkar en samt ólíkar og svo auðvitað alveg hrikalega skemmtilegar þannig það er sjaldan dauf stund í kringum okkur,“ segir Sylvía.
Matur Kökur og tertur Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira