Edduverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1999. Hátíðin í ár markar þáttaskil þar sem kvikmynda- og sjónvarpsverðlaununum hefur verið skipt upp í fyrsta sinn. Kvikmyndaverðlaunin voru afhent í gærkvöldi en sjónvarpsverðlaun verða veitt á haustmánuðum.
Á ferð með með mömmu var tilnefnd til verðlauna i tíu flokkum en hlaut níu. Þröstur Leó Gunnarsson og Kristbjörg Kjeld voru verðlaunuð fyrir leik sinn í myndinni en þau hlutu sitthvora Edduna fyrir leikara og leikkonu ársins í aðalhlutverkum. Þá hlaut Hilmar Oddson tvær Eddur fyrir leikstjórn og handrit kvikmyndarinnar.
Kvikmyndin Villibráð fékk næstflest verðlaun. Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fengu verðlaun fyrir aukahlutverk í myndinni.
Sigurður Sverrir Pálsson hlaut heiðursverðlaun ársins 2024.
Hér fyrir neðan er listi yfir vinningshafa gærkvöldsins.
Kvikmynd ársins: Á ferð með mömmu
Leikstjórn: Hilmar Oddson – Á ferð með mömmu
Handrit: Hilmar Oddsson – Á ferð með mömmu
Leikari í aðalhlutverki: Þröstur Leó Gunnarsson – Á ferð með mömmu
Leikkona í aðalhlutverki: Kristbjörg Kjeld – Á ferð með mömmu
Leikari í aukahlutverki: Björn Hlynur Haraldsson – Villibráð
Leikkona í aukahlutverki: Nína Dögg Filippusdóttir – Villibráð
Erlend kvikmynd: Anatomie d'une chute (Fallið er hátt)
Heimildamynd: Smoke Sauna Sisterhood
Heimildastuttmynd: Uppskrift: lífið eftir dauðann
Stuttmynd: Sætur (Felt Cute)
Barna-og unglingaefni: Sætur (Felt Cute)
Brellur: Davíð Jón Ögmundsson, Dragos Vilcu, Árni Gestur Sigfússon og Rob Tasker – Napóleonsskjölin
Búningar: Helga Rós V. Hannam – Á ferð með mömmu
Gervi: Kristín Júlía Kristjánsdóttir – Á ferð með mömmu
Tónlist: Tönu Kõrvits – Á ferð með mömmu
Hljóð: Björn Viktorsson og Huldar Freyr Arnarsson – Northern Comfort
Klipping: Gunnar B. Guðbjörnsson og Kristján Loðmfjörð – Napóleonsskjölin
Kvikmyndataka: Óttar Guðnason – Á ferð með mömmu
Leikmynd: Heimir Sverrisson – Villibráð
Uppgötvun ársins: Anna Katrín Lárusdóttir
Heiðursverðlaun 2024: Sigurður Sverrir Pálsson