Meistararnir komnir á toppinn 13. apríl 2024 15:55 Getty/Joe Prior Manchester City er komið í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir afar öruggan 5-1 sigur gegn Luton Town. Manchester City var með undirtökin eins og búast mátti við. Þeir slógu meira að segja deildarmet í fyrri hálfleik fyrir flestar snertingar í vítateig andstæðinganna. Þeir voru heldur ekki lengi að skora. Markið kom strax á 2. mínútu leiksins, þá hafði Erling Haaland sloppið einn gegn markverði Luton sem varði í tvígang. Þriðja tilraun Haaland var svo á leiðinni framhjá en Daiki Hashioka, varnarmaður Luton, fékk boltann í andlitið og þaðan skaust hann í netið. Afar óheppilegt atvik Mateo Kovacic tvöfaldaði svo forystuna á 65. mínútu. Markið kom eftir hornspyrnu sem barst til Kovacic rétt utan við teiginn. Skoppandi bolti sem hann klippti meðfram jörðinni og í netið. Erling Haaland skoraði svo þriðja og síðasta mark City úr vítaspyrnu sem Jeremy Doku fiskaði. Hans tuttugasta deildarmark á tímabilinu. Luton klóruðu í bakkann undir lokin og minnkuðu muninn í 3-1. Ross Barkley kom boltanum í netið eftir mistök í öftustu línu City. Það beit þó ekkert á heimamenn sem bættu fjórða og fimmta markinu við skömmu síðar. Jeremy Doku var fyrst á ferðinni með laglega afgreiðslu eftir að hafa sólað varnarmann upp úr skónum. Josko Gvardiol rak svo smiðshöggið rétt áður en flautað var til leiksloka. Sigurinn hleypir Manchester City upp í efsta sæti deildarinnar. Tveimur stigum á undan Arsenal og Liverpool sem spila á morgun gegn Aston Villa og Crystal Palace. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti