Hrikaleg heimsókn norður til Newcastle 13. apríl 2024 13:33 Leikmenn Tottenham þurftu fjórum sinnum að tína boltann úr eigin neti. George Wood/Getty Images Tottenham átti martaðardag á St. James Park og tapaði 4-0 fyrir Newcastle. Heimamenn lögðu upp með leikplan sem virkaði vel, leyfðu gestunum að halda í boltann og brutu þá niður með hröðum skyndisóknum. Newcastle nýtti vel hlaup inn fyrir háa varnarlínu Tottenham og veikleika þeirra í föstum leikatriðum. Alexander Isak braut ísinn á 30. mínútu eftir hraða skyndisókn Newcastle. Anthony Gordon gaf stoðsendinguna og skoraði svo sjálfur aðeins 95 sekúndum síðar. Þar gerði Gordon vel og vann boltann í vítateig Tottenham, keyrði inn völlinn framhjá einum varnarmanni og hamraði boltanum í netið. Aftur var Alexander Isak á ferðinni í upphafi seinni hálfleiks. Há varnarlína Tottenham gerði honum kleift að standa á eigin vallarhelmingi en samt langt fyrir aftan miðvörðinn Micky Van de Ven. Newcastle vann boltann og Bruno Guimares lyfti honum inn fyrir á Isak sem skaut í markið af mikilli snilli. Fjórða markið kom svo eftir hornspyrnu Anthony Gordon. Fabian Schar reis hæst í teignum og stangaði boltann í netið. Newcastle er í 6. sæti deildarinnar með 50 stig og minnkaði með þessum sigri forystu Tottenham í 5. sætinu niður í tíu stig, 60 alls. Enski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti