Lífið

Ey­þór Ingi tók lag með Lauf­eyju Lin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eyþór flutti lagið Lovesick á föstudagskvöldið.
Eyþór flutti lagið Lovesick á föstudagskvöldið.

Í þættinum Kvöldstund með Eyþóri Inga á föstudagskvöldið á Stöð 2 voru allskonar lög tekin. GDRN mætti sem gestasöngkona en einn flutningur vakti sérstaka athygli.

Hin íslenska Laufey Lin hefur verið að slá í gegn um allan heim síðustu ár. Hún stóð fyrir tónleikum í Hörpu á dögunum og seldist upp á þá alla á mjög stuttum tíma.

Eitt af hennar vinsælustu lögum er Lovesick og ákvað Eyþór Ingi að fara í ákveðið áhættuatriði eins og hann orðaði það sjálfur, að flytja lag með Laufeyju.

Útkoman, frábær eins og sjá má hér að neðan.

Klippa: Eyþór Ingi - Livesick með Laufey Lin

Tengdar fréttir

Glæsilegt eftirpartý Laufeyjar á Edition

Tónlistarkonan og Grammy-verðlaunahafinn Laufey Lín Jónsdóttir fagnaði með fjölskyldu og vinum í eftirpartýi á skemmtistaðnum Sunset á lúxushótelinu Edition við Reykjavíkurhöfn á sunnudagskvöld eftir þriggja daga tónleikahald í Eldborgarsal Hörpu. 

Laufey spilaði á selló með Billy Joel

Grammy verðlaunahafinn Laufey Lín endaði ævintýralegt kvöld sitt á hátíðinni í gær með því að spila á sviði með Billy Joel. 

Tárin runnu niður kinnar

Ég sit við hringborð á veitingastað í Hörpu. Staðurinn heitir víst Hnoss. Ég var að læra það. Það er hlegið og grínast. En ég get ekki hugsað um neitt nema tónleikana sem ég var á. Mér finnst við vera að brjóta lög með því að kryfja ekki upplifunina sem við urðum öll vitni að. Við skálum einu sinni, fyrir mögnuðum tónleikum. Mér finnst ég verða að segja öllum frá. Komast í tölvu. Skrifa. Það er ekki á hverjum degi sem maður tárast á tónleikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.