Lífið

Mögu­legir fram­bjóð­endur komnir í sam­band við al­manna­tengla

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Andrés Jónsson almannatengill spáði í forsetakosningarnar í Íslandi í dag í gærkvöldi.
Andrés Jónsson almannatengill spáði í forsetakosningarnar í Íslandi í dag í gærkvöldi. Vísir/Einar

Almannatengill telur alls ekki útilokað að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig fram til embættis forseta í komandi kosningum. Þá hefur hann heyrt af þreifingum víða; mögulegir frambjóðendur séu byrjaðir að setja sig í samband við kollega í almannatengslum.

Forsetakosningarnar voru til umfjöllunar í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. Andrés Jónsson almannatengill var fenginn til að spá í spilin. Hann segir spennandi kosningar í vændum og margir hugsi Guðna Th. Jóhannessyni fráfarandi forseta eflaust þegjandi þörfina að hafa skapað vettvang fyrir kapphlaupið sem nú fer í hönd. Enn er þó beðið eftir sannfærandi valkosti í kapphlaupið og nokkrir slíkir liggja undir feldi; Baldur Þórhallson prófessor í stjórnmálafræði eflaust sá sem kominn er næst framboði, í það minnsta opinberlega.

„Svo er talað um forsætisráðherrann okkar. Ég tel ekkert útilokað að hún komi fram og fleiri í kringum mig eru farnir að velta því upp. En þetta verður mjög spennandi,“ segir Andrés.

Katrín var spurð að því á Alþingi í byrjun mánaðar hvort hún hygði á forsetaframboð. Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins bað hana um afdráttarlaust „nei eða já“-svar. „Já, herra forseti. Ég hef ekki leitt hugann að slíku framboði enda eru ærin verkefni í forsætisráðuneytinu,“ svaraði forsætisráðherra.

Hvað sem því líður eru almannatenglar landsins byrjaðir að finna fyrir áhuga frá mögulegum „alvöru“ frambjóðendum. Afgerandi þreifingar eru semsagt hafnar.

„Maður hefur heyrt af áhuga og vangaveltum ýmissa. Ég svosem hef ekki tekið neinn að mér en maður hefur heyrt að kollegar, þeir séu farnir að fá fyrirspurnir,“ segir Andrés.

Brot úr viðtalinu við Andrés má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan. Áskrifendur geta horft á þáttinn í heild, þar sem einnig er rætt við Þóru Arnórsdóttur fyrrverandi forsetaframbjóðanda, á Stöð 2+ eða í frelsiskerfi Stöðvar 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.