Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið Kristján Már Unnarsson skrifar 9. mars 2024 07:47 Geirþrúður Alfreðsdóttir og Haukur Alfreðsson, tvö af börnum Alfreðs Elíassonar og Kristjönu Millu Thorsteinsson. Egill Aðalsteinsson „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu.
Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um afmæli Loftleiða en félagið var stofnað þann 10. mars árið 1944. Flugsafn Íslands og Sögufélag Loftleiða standa að sýningunni í austurálmu og bíósal Hótels Loftleiða. Þar var sýningunni fylgt úr hlaði síðdegis í gær með ræðum en hún verður opin milli klukkan 10 og 17 alla daga fram til 16. mars. Aðgangur er ókeypis. Forstjóri Icelandair, Bogi Nils Bogason, skoðar veggspjald um forvera sinn, Alfreð Elíasson. Með sameiningu Loftleiða og Flugfélags Íslands árið 1973 urðu Flugleiðir til, nú Icelandair.KMU Þar má sjá kvikmyndir og muni úr merkri sögu Loftleiða auk þess sem saga félagsins og frumkvöðla er rakin á veggspjöldum. Sýningin er styrkt af Safnasjóði og sett upp með stuðningi og í góðri samvinnu við Icelandair, Loftleiðir Icelandic og Berjaya Reykjavik Natura Hotel. Í vor verður sýningin svo sett upp á Flugsafninu á Akureyrarflugvelli. Loftleiðafánum flaggað við gamla Hótel Loftleiðir, nú Berjaya Reykjavík Natura Hotel.KMU Forstjórinn Alfreð Elíasson var óskoraður foringi Loftleiðamanna og Loftleiðabyggingin, sem núna hýsir einnig höfuðstöðvar Icelandair, er einn helsti minnisvarðinn um stórveldið sem þeir byggðu upp. Fyrir framan bygginguna hittum við tvö af börnum hans og spurðum hversvegna menn töluðu um Loftleiðaævintýrið: Frantz Håkonsson, fyrrverandi flugstjóri, bendir á DC 6B sem hann hóf að fljúga hjá Loftleiðum aðeins 21 árs gamall árið 1961. Þarna má einnig sjá líkan af fyrstu flugstöð Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli.KMU „Loftleiðaævintýrið? Vegna þess að þetta var bara lítið íslenskt félag. Eða bara þrír ungir flugmenn sem störtuðu flugfélagi og byrjuðu,“ svaraði Geirþrúður Alfreðsdóttir. Tveimur árum síðar hafi þeir verið búnir að kaupa fjögurra hreyfla flugvél. Grunnurinn að ævintýrinu var lagður á Miklavatni í Fljótum þar sem dóttir Dagfinns Stefánssonar flugstjóra sýndi okkur bækistöð síldarleitarflugs Loftleiða. Inga Dagfinnsdóttir við bústað sem faðir hennar, Dagfinnur Stefánsson, reisti á grunni bækistöðvar síldarleitarflugs Loftleiða við Miklavatn í Fljótum í Skagafirði.Sigurjón Ólason „Hér voru þeir frumkvöðlarnir Alfreð, Kristinn Olsen, pabbi, Smári Karlsson og fleiri. Og þeir flugu hérna daginn út og daginn inn í leit að síldinni. Þarna var verið að byggja upp heila starfsgrein í fluginu,“ sagði Inga Dagfinnsdóttir. Forvígismenn Aðdáendaklúbbs Loftleiða, Haukur Alfreðsson og Emil Guðmundsson.KMU „Þeir keyptu fjögurra hreyfla flugvél tveimur árum eftir að fyrirtækið var stofnað 1944, sem er alveg stórmerkilegt,“ sagði Haukur Alfreðsson. Þetta voru fjarkarnir en síðan komu sexurnar, Rolls Royce-vélarnar og loks átturnar og voru Loftleiðir um tíma með þriggja prósenta markaðshlutdeild í Norður-Atlantshafsflugi. Einar Knútsson flugvirki, Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, og Geir Hauksson flugvirki. Á efri hillunni er líkan af Monsa, eða Rolls Royce 400. Eftir að Loftleiðir létu lengja flugvélarnar báru þær 189 farþega og voru þær stærstu í flugi yfir Atlantshafið.KMU „Loftleiðaævintýrið er náttúrlega má segja; ja, við erum lítil þjóð en við erum að fara þarna inn á alþjóðlegan markað. Við erum að brjóta ísinn á mörgum sviðum,“ sagði Haukur. Í nýlegri tíu blaðsíðna grein í flugtímaritinu Airliner World er Loftleiðum lýst sem fyrsta lággjaldaflugfélagi sögunnar. Og fraktflugfélagið Cargolux, sem þeir byggðu upp í Lúxemborg, er núna það stærsta í Evrópu. Geirþrúður Alfreðsdóttir og dóttir hennar, Stefanía Ástrós Benónýsdóttir, skoða muni úr sögu Loftleiða.KMU „Ég man það að þegar ég labbaði fyrst út af myndinni Alfreðs saga og Loftleiða þá var ég eiginlega bara stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið. Ég bara hafði aldrei áttað mig á því fyrr en ég labbaði út af myndinni. Því að í mínum huga hafði pabbi aldrei verið svona einhver stórforstjóri,“ sagði Geirþrúður. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Í tíu mínútna viðtali við Jóhannes Einarsson á Stöð 2 árið 2017 var fjallað um Loftleiðaævintýrið:
Fréttir af flugi Söfn Ferðamennska á Íslandi Reykjavíkurflugvöllur Akureyrarflugvöllur Icelandair Tengdar fréttir Flugfreyjur í stuttum pilsum þurftu að teygja sig upp Þær byrjuðu margar að fljúga á árunum upp úr 1960 og voru fyrsta kynslóðin sem gerði flugfreyjustarfið að ævistarfi. Þær halda enn hópinn, sem telur meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra, og rifja upp gamlar sögur úr fluginu. 2. apríl 2023 06:21 Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. 7. janúar 2023 21:10 Endurheimt dráttarbeislisins kannski sögulok Geysisslyssins Merkum flugsöguminjum, sem tengjast Geysisslysinu á Vatnajökli, hefur verið bjargað til byggða eftir að hafa legið uppi á hálendi í meira en sjötíu ár. Sonur Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða, sótti gripina núna í vetrarbyrjun ásamt félaga sínum í þriggja daga leiðangri að rótum Síðujökuls. 11. desember 2022 22:42 Minnast þess að hálf öld er frá því Loftleiðamenn stofnuðu Cargolux Cargolux, skilgreint afkvæmi Loftleiðaævintýris Alfreðs Elíassonar og félaga, er í dag stærsta frakflugfélag Evrópu og það sjöunda stærsta í heiminum. 7. mars 2020 07:22 Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira
Flugfreyjur í stuttum pilsum þurftu að teygja sig upp Þær byrjuðu margar að fljúga á árunum upp úr 1960 og voru fyrsta kynslóðin sem gerði flugfreyjustarfið að ævistarfi. Þær halda enn hópinn, sem telur meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra, og rifja upp gamlar sögur úr fluginu. 2. apríl 2023 06:21
Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni. 7. janúar 2023 21:10
Endurheimt dráttarbeislisins kannski sögulok Geysisslyssins Merkum flugsöguminjum, sem tengjast Geysisslysinu á Vatnajökli, hefur verið bjargað til byggða eftir að hafa legið uppi á hálendi í meira en sjötíu ár. Sonur Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða, sótti gripina núna í vetrarbyrjun ásamt félaga sínum í þriggja daga leiðangri að rótum Síðujökuls. 11. desember 2022 22:42
Minnast þess að hálf öld er frá því Loftleiðamenn stofnuðu Cargolux Cargolux, skilgreint afkvæmi Loftleiðaævintýris Alfreðs Elíassonar og félaga, er í dag stærsta frakflugfélag Evrópu og það sjöunda stærsta í heiminum. 7. mars 2020 07:22
Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30