Innlent

Jöfnun launa milli markaða for­senda kjara­samnings

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari ræða málin í Karphúsinu.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari ræða málin í Karphúsinu. Vísir/Vilhelm

Formaður BSRB segir að samtökin muni horfa að miklu leyti til nýrra kjarasamninga sem undirritaðir voru í gær við kjaraviðræður samtakanna. Jöfnun launa milli markaða sé þó forsenda kjarasamnings.

Undirritun kjarasamninga milli SA og breiðfylkingar stéttarfélaga í gær markar mikil tíðindi á vinnumarkaði. Stór félög eiga þó eftir að ganga fá kjarasamingum, félög á borð við VR, en félagið sleit sig eftirminnilega frá Breiðfylkingunni fyrir nokkru. Fagfélögin eru í miðjum viðræðum hjá ríkissáttasemjara og samtökin BSRB hafa þegar hafið viðræður.

„Það voru auðvitað gerðir skammtímasamningar síðast þar sem sett voru í verkáætlun ýmis atriði sem ræða átti á tímabilinu og við erum svo sem búin að vera að þoka þeim málum áfram, eins og mál varðandi vaktavinnu og veikindakafla og annað. Síðan erum við að setja okkur í stellingar og erum aðeins búin að eiga samtöl þannig það má segja að viðræðurnar séru nú þegar hafnar, fyrir þónokkru síðan,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Kröfur svipaðar

Framkvæmdastjóri SA sagði við undirritun nýs kjarasamnings í gær að samningurinn væri stefnumarkandi fyrir aðra samninga. Sonja segist hafa tekið undir markmið Breiðfylkingarinnar varðandi vexti og verðbólgu.

„Kröfurnar hjá aðildarfélögum BSRB hafa verið af sama toga og hjá þeim.“

En er eitthvað sem þið þurfið að fá fram sem er ekki í þessum samningum? 

„Það sem auðvitað brennur helst hjá okkar fólki er að við fórum í stórar breytingar á vinnutíma árið 2020 og það eru sérstaklega vaktavinnuhóparnir okkar sem krefjast breytinga og við höfum verið í þeirri vinnu með ríki og sveitarfélögum. Sömuleiðis höfum við verið í vinnu í ansi mörg ár varðandi jöfnun launa milli markaða sem er þó ekki á kjarasamningsborðinu en það að tekin verði skýr næstu skref í því verkefni er forsenda þess að við getum skrifað undir kjarasamninga.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×