Veður

Rauðar tölur um allt land

Atli Ísleifsson skrifar
Höfuðborgarbúar vöknuðu upp við hvíta jörð í dag.
Höfuðborgarbúar vöknuðu upp við hvíta jörð í dag. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem liggur skammt suður af landinu kemur með milt loft og er hitastigið víða komið upp í núll til sjö stig núna í morgunsárið. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun.

Veðurstofan spáir því að það verði suðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu í dag, dálítil rigning eða súld með köflum og snjókoma til fjalla. Þó verður úrkomumeira suðaustanlands, en þurrt að kalla fyrir norðan.

Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu þrjú til átta stig í dag.

„Áfram suðaustanátt á morgun, 10-18 m/s. Lítilsháttar væta en bjart með köflum norðanlands. Bætir í úrkomu sunnanlands um kvöldið, hiti breytist lítið.

Austan 10-18 m/s á miðvikudag, hvassast syðst. Rigning um landið sunnan- og austanvert en léttskýjað norðantil. Talsverð úrkoma sunnanlands um kvöldið. Áfram milt í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Austan og suðaustan 13-18 m/s og dálítil rigning sunnantil, hiti 2 til 7 stig, en bætir í úrkomu undir kvöld. Hægara, þurrt að kalla og heldur svalara norðan heiða.

Á miðvikudag: Austan 10-18 m/s, hvassast syðst. Rigning sunnanlands, talsverð um kvöldið, en þurrt að mestu fyrir norðan. Hiti 2 til 9 stig, hlýjast sunnantil.

Á fimmtudag: Suðaustan 8-15 og rigning með köflum, einkum suðaustanlands en þurrt að mestu norðanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á föstudag: Suðaustlæg átt og dálítil rigning austantil en léttir til vestanlands. Hiti breytist lítið.

Á laugardag: Austanátt og bjart með köflum en lítilsháttar rigning eða slydda austantil. Hiti nálægt frostmarki, en 0 til 5 stig sunnanlands.

Á sunnudag: Útlit fyrir austlæga átt. Skýjað og dálítil rigning eða slydda sunnan- og austantil en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig en um eða undir frostmarki fyrir norðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×