Fram í annað sætið eftir stórsigur Smári Jökull Jónsson skrifar 10. febrúar 2024 19:00 Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Fram í dag. Vísir/Hulda Margrét Fram vann stórsigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í Garðabæ í kvöld.
Fyrir leikinn var Fram í þriðja sætinu og var tveimur stigum á eftir Haukum sem áttu þó leik til góða. Stjarnan var hins vegar í 6. sæti og í baráttu við Aftureldingu og KA/Þór í sætunum fyrir neðan. Fram byrjaði af miklum krafti og komst í 7-1 í Garðabænum í dag. Í stöðunni 10-3 náðu heimakonur hins vegar að skora fimm mörk í röð og minnka muninn í tvö mörk. Staðan í hálfleik var 12-9 Frömurum í vil. Stjörnukonur náðu að halda í við Framliðið framan af síðari hálfleiknum. Fram var þó alltaf með forystuna og í stöðunni 20-17 stungu þær algjörlega af og gengu frá leiknum. Fram skoraði sjö mörk í röð og munurinn orðinn tíu mörk. Lokatölur 30-20 og Fram er því jafnt Haukum að stigum í 2. - 3. sæti Olís-deildarinnar en Haukar eiga tvo leiki til góða. Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna en Alfa Brá Hagalín skoraði 9 fyrir Fram. Andrea Gunnlaugsdóttir var með um 40% vörslu í liði Fram líkt og Elísabet Millý Elíasardóttir hjá Stjörnunni. Öruggt hjá ÍR í Breiðholtinu ÍR vann sinn áttunda sigur í Olís-deildinni þegar liðið lagði botnlið KA/Þór á heimavelli. ÍR náði yfirhöndinni snemma og komst í 10-5 og leiddi 12-6 að loknum fyrri hálfleiknum. ÍR var í 5. sæti fyrir leikinn en KA/Þór í neðsta sætinu. ÍR byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og komst í 15-7. Það var of mikil munur fyrir botnliðið að brúa. ÍR sigldi sigrinum örugglega í höfn og náðu mest níu marka forskoti í síðari hálfleik. Lokatölur 22-17 og ÍR nú jafnt ÍBV að stigum í 4. - 5. sæti Olís-deildarinnar en KA/Þór er áfram á botninum. Karen Tinna Demian skoraði átta mörk fyrir ÍR í dag og Hildur Öder Einarsdottir var frábær í markinu með 45% markvörslu. Hjá KA/Þór varði Matea Lonac 9 skot eða um 30% þeirra skota sem hún fékk á sig og Anna Þyrí Einarsdóttir var markahæst með fjögur mörk.
Olís-deild kvenna Fram Stjarnan ÍR KA Þór Akureyri Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira