Öruggt hjá Magdeburg í toppslagnum Smári Jökull Jónsson skrifar 7. febrúar 2024 21:25 Janus Daði skoraði þrjú mörk í kvöld. Vísir/Getty Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason voru í liði Magdeburg í kvöld sem vann góðan útisigur á Kiel í þýska handboltanum. Þá var íslenskur þjálfaraslagur í leik Hannover-Burgdorf og Gummersbach.
Fyrir leikinn í kvöld var Magdeburg jafnt Fusche Berlin að stigum í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en meistarar Kiel í fjórða sæti sex stigum þar á eftir. Jafnt var í upphafi leiks en í stöðunni 5-5 skoraði Magdeburg fimm mörk í röð og náði frumkvæðinu. Kiel náði að minnka muninn fyrir hálfleik þar sem staðan var 15-13 en Magdeburg náði fljótlega fjögurra marka forystu á ný. Það bil náði Kiel ekki að brúa og gestirnir úr Magdeburg juku muninn undir lokin og unnu að lokum 33-26 sigur. Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum og Janus Daði Smárason skoraði þrjú og átti þátt í fjórum öðrum. Gísli Þorgeir Kristjánsson var fjarverandi vegna meiðsla. Heiðmar hafði betur gegn Guðjóni Val Í Hannover mættust heimamenn í Hannover-Burgdorf og Gummersbach. Gestirnir byrjuðu betur og komust í 12-8 um miðjan fyrri hálfleik en heimaliðið náði vopnum sínum á ný og minnkaði muninn fyrir hlé. Staðan að loknum fyrri hálfleik 15-14 gestunum í vil. Síðari hálfleikur var jafn á flestum tölum til að byrja með en í stöðunni 25-25 skoraði Hannover-Burgdorf fjögur mörk í röð og Gummersbach í vandræðum. Gestunum tókst ekki að minnka muninn nema niður í tvö mörk og Hannover-Burgdorf fagnaði að lokum þriggja marka sigri, lokatölur 32-29. Elliði Snær Viðarsson komst ekki á blað hjá Gummersbach í kvöld en liðið, sem þjálfað er ef Guðjóni Val Sigurðssyni, er í 8. sæti deildarinnar. Lærisveinar Heiðmars Felixsonar í Hannover-Burgdorf er í 6. sæti eftir sigurinn í kvöld og er þremur stigum á undan Gummersbach. Þá var skoraði Haukur Þrastarson tvö mörk í fjórtán marka sigri Kielce gegn Piotrkowianin í pólska handboltanum. Lokatölur 41-27 en Kielce er jafnt Wisla Plock að stigum á toppi pólsku deildarinnar.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira