Halldór tekur við HK en óvíst í hvaða deild Sindri Sverrisson skrifar 1. febrúar 2024 07:31 Halldór Jóhann Sigfússon er reynslumikill þjálfari og hefur meðal annars stýrt landsliði Barein. EPA-EFE/Mohamed Abd El Ghany Handknattleiksþjálfarinn reyndi Halldór Jóhann Sigfússon er á leið aftur í íslenska boltann frá Danmörku og verður næsti þjálfari karlaliðs HK. Frá þessu er greint á vef HK-inga.
Ekki er ljóst í hvaða deild HK verður þegar Halldór tekur við liðinu en hann mun taka til starfa eftir yfirstandandi tímabil, og er samningur hans til þriggja ára. HK er í fallbaráttu í Olís-deildinni með 7 stig eftir 13 umferðir, stigi fyrir ofan neðstu liðin sem eru Víkingur og Selfoss. Í síðasta mánuði var greint frá því að Sebastian Alexandersson, sem stýrt hefur HK frá 2021, myndi hætta þjálfun liðsins í vor, sem og aðstoðarþjálfarinn Guðfinnur Kristmannsson. Halldór Jóhann er í dag þjálfari Nordsjælland í Danmörku en hann tók við liðinu í fyrrasumar eftir að hafa þjálfað hjá Team Tvis Holstebro. Fyrir skömmu var greint frá því að Halldór myndi hætta hjá Nordsjælland í vor og sagt að fjölskylduaðstæður réðu því. Halldór hefur þjálfað lengi og meðal annars stýrt Fram, FH og Selfoss hér á landi, auk þess að þjálfa yngri landslið og vera aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Þá hefur hann stýrt karlalandsliði Barein.
Olís-deild karla HK Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Fótbolti Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Enski boltinn Frank Mill er látinn Fótbolti Fleiri fréttir Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Sjá meira