Teitur: Með þvílíkt vopnabúr og finnst gaman að skora Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2024 15:00 Remy Martin er frábær leikmaður sem getur bæði skorað sjálfur og búið til færi fyrir aðra. Vísir/Bára Teitur Örlygsson fór yfir það af hverju Remy Martin er svo illviðráðanlegur inn á vellinum en þessi frábæri bandaríski leikmaður Keflavíkurliðsins hefur spilað afar vel að undanförnu.
Remy Martin var frábær í síðasta leik Keflvíkinga í Subway deild karla og frammistaða hans var tekin fyrir í Subway Körfuboltakvöldi. Martin skoraði 29 stig, tók 11 fráköst og gaf 9 stoðsendingar í sigri Keflavíkur á Íslandsmeisturum Tindastóls. Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Körfuboltakvöld, vildi fá að vita það hjá sérfræðingum sínum hvað gerir Remy Martin svona góðan í körfubolta? „Þetta er þvílíkt vopnabúr sem hann er með. Hann er með stórkostlega boltameðferð. Hann er með þetta fyrsta skref, er snöggur og er með ofboðslegt ‚touch',“ sagði Teitur Örlygsson. „Honum líður betur með það að dræva til vinstri þótt að hann sé rétthendur og klárar ofboðslega vel þar. Síðan er þetta bara að honum finnst gaman að skora. Það er alveg greinilegt því það er alltaf fyrsti valið hjá honum,“ sagði Teitur. „Hann er óhræddur við að taka yfir þegar Keflavík þarf virkilega á því að halda. Við erum búin að sjá það nokkrum sinnum í vetur þar sem að hann hefur skotið þá inn í leikina,“ sagði Teitur. „Honum finnst gaman að vera maðurinn og hann er maðurinn í Keflavík“ sagði Stefán Árni og sérfræðingarnir tóku undir það. Remy vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna í leiknum á móti Stólunum en samherjar hans í Keflavíkurliðinu fóru illa með mörg tækifæri sem hann var að búa til fyrir þá. Næsta umferð Subway deildar karla fer fram í kvöld en Valsmenn taka þá á móti Keflvíkingum á Hlíðaenda. Hér fyrir neðan má sjá umfjöllum um Remy Martin og öll færin sem hann bjó til en urðu ekki að stoðsendingu. Klippa: Körfuboltakvöld: Hversu góður er Remy Martin?
Subway-deild karla Keflavík ÍF Körfuboltakvöld Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira