Tottenham áfram í bikarnum Siggeir Ævarsson skrifar 5. janúar 2024 22:00 Pedro Porro fagnar marki sínu af innlifun Vísir/Getty Tottenham er komið áfram í enska bikarnum eftir 1-0 sigur á Burnley. Sigurinn var töluvert öruggari en lokatölurnar gefa til kynna en Burnley-menn voru aldrei líklegir til stórræða í leiknum. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum en náðu þó aðeins að koma boltanum einu sinni í markið. Það var ekki fyrr en á 78. mínútu sem Tottenham náði að rjúfa varnarmúr Burnley. Þar var á ferðinni Pedro Porro og var það markið sem skildi liðin að. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley í kvöld en hann hefur verið inn og út úr liðinu í vetur vegna meiðsla. Enski boltinn