Lífið

Shane MacGowan er látinn

Jón Þór Stefánsson skrifar
Shane MacGowan fæddist á jóladag 1957 og er hvað þekktastur fyrir jólalagið Fairytale of New York.
Shane MacGowan fæddist á jóladag 1957 og er hvað þekktastur fyrir jólalagið Fairytale of New York. Getty

Tónlistarmaðurinn Shane MacGowan, söngvari hljómsveitarinnar The Pogues, er látinn 65 ára að aldri.

Hann var hvað þekktastur fyrir aðkomu sína að jólalaginu Fairytale of New York. Önnur vinsæl lög The Pogues eru til að mynda Dirty Old Town, The Irish Rover, A Pair Of Brown Eyes og A Rainy Night In Soho.

Shane, sem var írskur, fæddist í Kent-sýslu á Englandi á jóladegi árið 1957. Greint er frá andlátinu í breskum fjölmiðlum, en þar kemur fram að hann hafi glímt við ýmis heilsufarsleg vandamál á síðustu árum.

Shane MacGowan ásamt móður sinni Therese á uppeldisheimili sínu í Írlandi.EPA

„Shane verður alltaf ljós lífs míns, mælikvarði drauma minna og mín eina sanna ást,“ er haft eftir Victoria Mary Clarke, eiginkonu MacGowan. 

Þau giftust í Kaupmannahöfn árið 2018. Brúðkaupið vakti nokkurra athygli þar sem Johnny Depp, vinur Shane, spilaði á gítar í athöfninni.

Ungur að aldri aðhylltist MacGowan pönkið og var frægur fyrir áfengis- og fíkniefnaneyslu sína. Í umfjöllun um hann er bent á að tennur hans hafi komið illa úr neyslunni.

Sagnalistin lá vel fyrir honum, en þegar hann var þrettán ára gamall hlaut hann bókmenntaverðlaun Daily Mirror vegna skrifa sinna og skólastyrk í Westminister-skólanum.


Tengdar fréttir

BBC ritskoðar vinsælt en óheflað jólalag

Yfirmenn bresku útvarpstöðvarinnar BBC Radio 1 hafa tekið ákvörðun um að ritskoðuð útgáfa eins vinsælasta jólalags Bretlands fari í loftið þessi jólin á útvarpsstöðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.