Rafíþróttir

Til­þrifin: Vrhex með ás upp í erminni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
canvas

Líkt og í Ljósleiðaradeildinni birtir Vísir Elko tilþrif kvöldsins úr íslenska Blast-umspilinu sem fram fór í gærkvöldi. Í þetta sinn er það Vrhex í liði Young Prodigies, sem áður hét TYen5ion, sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Ungstirnin í Young Prodigies sigruðu FH-inga 2-0 í seríu sem var þó langt frá því að vera einstefna, en fyrri leikurinn fór í framlengingu. Með sigrinum tryggðu Young Prodigies sér sæti í undanúrslitum Blast-umspilsins.

Vrhex sýndi frábær tilþrif í viðureigninni gegn FH er liðin mættust á Nuke. Hann stillti sér þá upp á A-svæðinu og beið eftir liðsmönnum FH áður en hann felldi þá alla og sigraði lotuna fyrir Young Prodigies.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: Vrhex með ás upp í erminni





×