Lífið

Stjörnulífið: Tón­leikar, glamúr, óp og skvísulæti

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins nutu lífsins hérlendis og erlendis í síðastliðinni viku.
Stjörnur landsins nutu lífsins hérlendis og erlendis í síðastliðinni viku. SAMSETT

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Birgitta Líf leyfði óléttubumbunni að skína skært í London, stórsöngkonur landsins komu saman á Tinu Turner heiðurstónleikum í Hörpu og Gummi Kíró skellti sér í sunnudagspelsinn. 

Ef Instagram-færslurnar birtast á ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

Fyrstu tónleikar barnsins

Birgitta Líf skellti sér til London með sambýlismanni sínum Enok Jónssyni. Þar hittu þau frænda Birgittu, rapparann Gísla Pálma, og skellti þríeykið sér á 50 cent tónleika. Birgitta Líf var glæsileg í magabol og leyfði óléttubumbunni að njóta sín. Hún birti myndasyrpu af rapptónleikunum á Instagram þar sem hún skrifaði: „Baby's first concert“. 

Nægjusöm en skvísuleg tíska

Leikkonan og baráttukonan Aldís Amah skvísaði sig upp og hvetur fólk til að versla með nægjusemi í huga.

Skvísulæti í Manchester

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Tanja Ýr átti gott gellukvöld í Manchester.

Sunnudags pelsinn

Gummi Kíró bað fólk að njóta sunnudagsins og skartaði svörtum pels á Kjarvalsstöðum. 

Tinu Turner fjör í Hörpu

Dansarinn Sandra Helgadóttir kom fram á Tinu Turner heiðurstónleikum í Hörpu ásamt hópi úrvalssöngkvenna og öðrum dönsurum. 

Bríet skín skært

Tónlistarkonan Bríet birti myndir af sér baksviðs frá Iceland Airwaves og hlakkar til að koma fram í Eldborg í desember. 

Nýtur lífsins í New York

Fótboltakappinn og Iceguys meðlimurinn Rúrik Gíslason spókar sig um í New York í smart klæðnaði. 

Óvænt afmæli

Leikkonan Íris Tanja fagnaði 34 ára afmæli sínu um helgina en hennar nánustu vinir komu henni heldur betur á óvart. 

Sunneva Einars rokkaði bleikan síðkjól

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir birti myndir frá Live Show-i hlaðvarpsins Teboðið sem haldið var í Gamla bíó. Sunneva klæddist bleikum síðkjól og virðist hafa átt dásamlegt kvöld, enda líður henni langbest þegar hún klæðist bleiku. 

Söng fyrir pizzuröðina

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar söng við opnun pizzastaðarins Pizza 107 og gat biðröðin notið ljúfra tóna hans. 

Aldrei nóg af Evum

Grínistinn og skemmtikrafturinn Hjálmar Örn var í góðum málum með tveimur Evum. 

Flygill fullur af tilfinningum

Listamaðurinn Snorri Ásmundsson birti mynd af sér við flygilinn og flytur listræna gjörninga með tilfinningarnar að vopni. 

Fagnað í Kaupmannahöfn

Fasteignasalan Lind skellti sér í árshátíðarferð til Kaupmannahafnar. Fasteignasalinn, áhrifavaldurinn og dansarinn Tara Sif Birgisdóttir naut sín vel og var hin glæsilegasta.

Óp í Osló

Rapparinn, leikstjórinn og framleiðandinn Joey Christ birti mynd af sér við hið sögulega málverk Ópið eftir listmálarann Edvard Munch. Verkið er frá 1893 en myndin af Joey er nýleg. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.