Lífið

Fal­leg sam­búð þrátt fyrir sex­tíu ára aldurs­mun

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjördís kynnti Tinnu fyrir Þórhalli eiginmanni sínum.
Hjördís kynnti Tinnu fyrir Þórhalli eiginmanni sínum.

Það eru ekki nema um sextíu ár á milli Hjördísar og Tinnu sem bjuggu saman í tvær nætur í síðasta þætti af Sambúðin.

Hjördís Geirsdóttir er 79 ára og Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir 19 ára en hún er að læra klassískan söng.

Þættirnir Sambúðin hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum. Í þáttunum er fylgst með sex pörum sem saman sett eru af einni manneskju sem komin er á eftirlaunaaldur og annarri ungri manneskju um tvítugt.

Hjördís fór til að mynda með Tinnu í heimsókn á Hrafnistu þar sem eiginmaðurinn hennar Þórhallur Geirsson býr en þau hafa verið trúlofuð í sextíu ár.

Heimsóknin á Hrafnistu var skemmtileg og fékk Tinna að heyra margar sögur af góðu lífi þeirra hjóna eins og sjá má hér að neðan en áskrifendur geta séð þáttinn í heild sinni á Stöð 2+ eða á frelsiskerfi Stöðvar 2.

Klippa: Sextíu ára aldursmunur en falleg sambúð





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.