Sunna sá um norðankonur og ÍR sótti sigur að Varmá Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. nóvember 2023 15:49 Sunna Jónsdóttir átti góðan leik fyrir ÍBV í dag Áttundu umferð Olís deildar kvenna lauk með tveimur leikjum í dag. ÍR sótti sigur gegn botnliði Aftureldingar og ÍBV vann öruggan sigur á Þór/KA.
Vandræði Aftureldingar héldu áfram, liðið hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu en sá sigur kom í annarri umferð gegn Stjörnunni. ÍR liðið var léttleikandi og með örugg tök á leiknum en misstu forystuna aðeins niður undir lokin. Níu stigum munaði milli liðanna þegar fimm mínútur voru eftir, Afturelding átti frábæran endasprett en sá sprettur kom of seint. Lokatölur 20-24 ÍR í vil. Karen Tinna Demiam varð markahæst í leiknum með 8 mörk fyrir ÍR, hún þurfti þó heil 18 skot til að ná þeim árangri. Sum þeirra rötuðu ekki á markið en mörg skot sem gerðu það voru varin af Sögu Sif Gísladóttir, markverði Aftureldingar, sem varði 13 skot í leiknum. ÍBV tók svo á móti Þór/KA í seinni leik dagsins. Svipaða sögu er að segja þeim leik, sigurinn var aldrei í hættu fyrir Eyjastelpur sem unnu að endingu 25-16. Marta Wawrzykowska fór mikinn í marki ÍBV og varði 13 skot, eða helming allra skota sem komu á markið. Sunna Jónsdóttir sá svo um markaskorunina með 8 mörk úr 8 skotum. Afturelding situr sem áður segir á botni deildarinnar með aðeins tvö stig. Þór/KA er í sjötta sætinu með ÍR og ÍBV í 4. og 5. sætunum fyrir ofan.
Olís-deild kvenna Afturelding ÍR ÍBV Þór Akureyri KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira