Körfubolti

Stefán Árni tekur við Subway Körfu­bolta­kvöldi og fjórir nýir sér­fræðingar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stefán Árni Pálsson tekur við stjórnartaumunum í Subway Körfuboltakvöldi.
Stefán Árni Pálsson tekur við stjórnartaumunum í Subway Körfuboltakvöldi. vísir/hulda margrét

Stefán Árni Pálsson stýrir Subway Körfuboltakvöldi á næsta tímabili. Fjórir nýliðar eru í sérfræðingateymi þáttarins.

Eftir átta ár við stjórnvölinn í Subway Körfuboltakvöldi lét Kjartan Atli Kjartansson gott heita eftir síðasta tímabil. Hann segir þó ekki skilið við Subway deildina enda þjálfari nýliða Álftaness.

Stefán Árni fær það verðuga verkefni að taka við Subway Körfuboltakvöldi af Kjartani Atla. Stefán Árni hefur starfað lengi hjá Stöð 2 Sport og stýrði meðal annars Seinni bylgjunni um tveggja ára skeið.

„Ég er ótrúlega spenntur fyrir vetrinum. Ég er aðdáandi þáttarins og hef held ég aldrei misst af einu einasta föstudagskvöldi,“ segir Stefán Árni og heldur áfram.

„Þetta er vissulega mjög krefjandi verkefni fyrir mig. Maður er spenntur, en líka stressaður. Ég er að taka við af manni sem gerði magnaða hluti fyrir íslenskan körfubolta og það verður mjög erfitt að feta í hans spor. En ég verð bara að standa mig og gera þetta almennilega. Við erum aðeins að breyta þættinum og byggja hann upp með öðrum hætti. Teymið sem verður síðan í kringum mig er ótrúlega gott og erfitt að finna menn sem hafa meiri ástríðu fyrir þessari geggjuðu íþrótt. Ég get lofað fólki einu, það verður gaman hjá okkur.“

Í vetur verða fimm leikir á sama tíma á fimmtudögum og skipt verður á milli þeirra í Tilþrifunum sem Hörður Unnsteinsson stýrir. Leikirnir fimm verða svo gerðir upp í Tilþrifunum.

Á föstudögum verður svo einn leikur sýndur í beinni. Sérfræðingur hitar upp fyrir hann, kemur inn með helstu atriði í hálfleik og gerir hann svo upp í leikslok. Síðan verður umferðin í heild sinni gerð upp í Subway Körfuboltakvöldi undir stjórn Stefáns Árna.

Teitur Örlygsson, Sævar Sævarsson, Matthías Orri Sigurðarson og Jón Halldór Eðvaldsson snúa aftur sem sérfræðingar. Fjórir nýir koma svo inn í teymið; Magnús Þór Gunnarsson, Helgi Már Magnússon, Ómar Örn Sævarsson og Rúnar Ingi Erlingsson.

Keppni í Subway deild karla hefst 5. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×