Erlent

Fleiri en tvö þúsund lík fundin eftir flóðin í Líbíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Yfirlitsmynd yfir eyðilegginguna í Derna í Líbíu í gær. Tvær ríkisstjórnir ríkja yfir hvor sínum hluta landsins og innviðir hafa fyrir vikið verið látnir grotna niður víða.
Yfirlitsmynd yfir eyðilegginguna í Derna í Líbíu í gær. Tvær ríkisstjórnir ríkja yfir hvor sínum hluta landsins og innviðir hafa fyrir vikið verið látnir grotna niður víða. AP/Jamal Alkomaty

Björgunar- og leitarflokkar hafa fundið meira en tvö þúsund lík í rústum borgarinnar Dernu í austanverðri Líbíu. Yfirvöld óttast að tala látinna gæti náð fimm þúsund þegar uppi er staðið.

Stormurinn Daníel olli hamfaraflóðum í Dernu og víðar í austanverðri Líbíu á sunnudag. Flóðvatnið varð til þess að stíflur brustu og vatnselgurinn skolaði burt heilu hverfunum.

Othman Abduljaleel, heibrigðisráðherra í þeirri stjórn sem ríkir í Austur-Líbíu, segir AP-fréttastofunni að meira en helmingur þeirra tvö þúsund líka sem höfðu fundust í morgun hafi nú þegar verið grafin í fjöldagröfum í Derna. Enn er talið að tíu þúsund manns sé saknað.

Björgunarlið leggur nótt við dag í leit sinni að líkum sem liggja á víð og dreif úti á götum og undir húsarústum. Sum líkanna voru veidd upp úr sjónum.

Yfirvöld hafa flutt hundruð líka til nágrannabæja, þar á meðal 84 Egypta sem fórust í hamförunum. Tugir þeirra hafa verið send heim til Egyptalands þar sem byrjað var að greftra þau í gær. 

Erfiðlega hefur genguð að koma alþjóðlegum hjálparstarfsmönnum á hamfarasvæðið þar sem flóðin skemmdu eða eyðilögðu fjölda vega sem liggja að borginni. Neyðargögn byrjuðu að berast til Benghazi, um 250 kílómetra austur af Derna, í gær.

Gervihnattamynd sem sýnir ummerki eftir flóðin í Derna. Myndin var tekin þriðjudaginn 12. september 2023.AP/Planet Labs PBC



Fleiri fréttir

Sjá meira


×