Innlent

Fljúgandi trampólín og hefð­bundin fok­verk­efni

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir hafa verið vel undirbúnar fyrir fyrstu haustlægð landsins sem gekk yfir í gærkvöldi.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir hafa verið vel undirbúnar fyrir fyrstu haustlægð landsins sem gekk yfir í gærkvöldi. Landsbjörg

Verkefnum björgunarsveita fækkaði eftir því sem leið á gærkvöldið. Upplýsingafulltrúa Landsbjargar er ekki kunnugt um að nein stórtjón hafi orðið í hefðbundnum skilningi. Á meðal verkefna voru fljúgandi trampólín og ferðavagnar sem fóru á hliðina.

„Verkefnin voru fyrst og fremst veðurtengd fram eftir kvöldi. Veðrið gekk inn á landið og við urðum fyrst vör við þetta á Suðurnesjunum. Og síðan gekk þetta hérna yfir Höfuðborgarsvæðið og inn á Vesturland, Akranes, Borgarnes og svo framvegis,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar aðspurður um helstu verkefni björgunarsveita þegar fyrsta haustlægð landsins gekk yfir í gærkvöldi. 

„Á öllum þessum þéttbýlisstöðum þurfti okkar fólk að fást við foktjón og fokverkefni af einhverju tagi, fljúgandi trampólín, ferðavagna sem fóru að færast til eða leggjast á hliðina og svo framvegis.“

Honum er ekki kunnugt um neitt stórtjón enn sem komið er.

„En auðvitað er það í augum hvers og eins. Það féllu gömul tré í Vesturbænum, í hugum einhverra er það væntanlega stórtjón. En þessi hefðbundna skilgreining kannski ekki.“

Þegar farið hafi að lægja hafi ekki þótt ástæða til að björgunarsveitir væru áfram með viðveru og fólk farið heim.

Núna er bara leiðindaveður.

Fréttir bárust af því að tívolítæki hefði tekist á loft á Suðurnesjum á hátíð í tengslum við Ljósanótt. Jón Þór hafði ekki frekari upplýsingar um það atvik en segir að björgunarsveitir hafi farið á svæðið og tryggt að ekki yrði meira tjón en þegar var orðið. 

Verkefnum fór að fækka eftir því sem leið á kvöldið nema hjá hálendishóp sem sinnti útkalli vegna örmagna göngumanns í Jökultungum. Maðurinn, sem er á stjötugsaldri, var hluti af gönguhóp sem hafði verið á nokkurra daga göngu. Sveitir á Suðurlandi voru boðaðar út til aðstoðar og var sá liðsauki kominn á vettvang skömmu fyrir klukkan 2 í nótt og þá var hafist handa við að koma manninum niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×