Englandsmeistararnir staðfesta Nunes og selja Palmer til Chelsea Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. september 2023 11:30 Nunes er mættur til Manchester. Manchester City Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á miðjumanninum Matheus Nunes. Hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Þá er hinn ungi Cole Palmer genginn í raðir Chelsea.
Man City hefur verið á eftir Nunes undanfarna daga og hefur nú tekist að sannfæra Úlfana um að sleppa takinu á þessum 25 ára gamla portúgalska miðjumanni. Talið er að kaupverðið nemi um 53 milljónum punda eða tæplega níu milljörðum íslenskra króna. Nunes gekk í raðir Úlfanna á síðustu leiktíð og lék alls 36 leiki fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni. Hann er nú mættur í raðir Englandsmeistaranna og á að hjálpa til við að fylla skarðið sem İlkay Gündoğan skildi eftir sig en þýski landsliðsmaðurinn gekk í raðir Barcelona í sumar. Welcome, Matheus Nunes! pic.twitter.com/Ba4vExfLAz— Manchester City (@ManCity) September 1, 2023 Það er nóg um að vera á skrifstofu Man City rétt fyrir gluggalok en hinn ungi og efnilegi Cole Palmer er genginn í raðir Chelsea. Talið er að Lundúnafélagið borgi 40 milljónir punda eða 6,7 milljarða íslenskra króna, fyrir 21 árs gamla leikmann. Palmer skrifar undir sjö ára samning við Chelsea með möguleika á ári til viðbótar. Hann er 11. leikmaðurinn sem Chelsea fær í sínar raðir í sumar. A perfect fit. pic.twitter.com/oNSMwuoLgo— Chelsea FC (@ChelseaFC) September 1, 2023
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Sjá meira