Á vef Veðurstofunnar segir að núna í morgunsárið sé 965 millibara lægð um 400 kílómetra suðvestur af Hvarfi sem fari hratt austnorðaustur til Íslands.
Skilin sem fylgi lægðinni komi að suðvesturströnd landsins seinni partinn í dag og þeim fylgi suðaustan stormur og rigning, talsverð á köflum. Hiti á landinu verður á bilinu tíu til sautján stig.
Gular viðvaranir taka margar gildi á vestan- og sunnanverðu á landinu klukkan 21 í kvöld og gilda fram á morgun.
„Mikilvægt er að huga að nærumhverfinu, líkur eru á að laufblöð geti rifnað af trjám og eru þau þá fljót að stífla niðurföll. Að sama skapi er stórstreymt í kvöld og í ljósi ölduhæðarspár og vindáttar er líklegt að sjávarstaða verði há áveðurs, eins og t.d. í Grindavík og jafnvel líka í Þorlákshöfn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Sunnan og suðvestan 10-18 m/s með rigningu fyrripartinn, talsverðri á köflum, hvassast sunnan- og vestanlands. Skúrir síðdegis, en styttir upp norðaustantil. Hiti 10 til 16 stig yfir daginn.
Á sunnudag: Suðvestan 8-15 m/s og skúrir, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands, hvssast við suðurströndina. Hiti 8 til 14 stig.
Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en úrkomulítið síðdegis. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag: Suðlæg átt og skýjað með lítilsháttar vætu vestanlands, en bjartviðri fyrir austan. Hlýnar heldur.
Á miðvikudag: Suðlæg átt með rigningu, einkum vestantil. Milt í veðri.
Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt og vætu, en bjartviðri norðaustantil.