Hitinn gæti farið í 23 stig en regnsvæði nálgast Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2023 07:06 Á morgun eru horfur á mjög þungbúnum og blautum degi á stórum hluta landsins. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir að það verði hægur vindur og bjart veður í dag. Þokuloft er nú allvíða á sveimi, en það ætti að bráðna af þegar líður á morguninn.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það sé nú hlýtt og hlýjast í dag verði væntanlega á norðaustanverðu landinu, þar sem hitinn gæti náð 23 stigum þar sem best lætur. „Íbúar á vestanverðu landinu munu sjá bliku (háský) færast yfir úr vestri. Það er að nálgast regnsvæði og vestantil á landinu verður vaxandi sunnanátt síðdegis og búast má við rigningu þar í kvöld. Á morgun eru síðan horfur á mjög þungbúnum og blautum degi á stórum hluta landsins, sem eru viðbrigði frá því þurra veðri sem verið hefur undanfarið. Norðaustan- og austanlands verður hlýtt áfram (ætti að ná yfir 20 stig) og þar hangir þurrt að mestu fram eftir degi, en búast má við rigningu einnig á þessum slóðum annað kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Það er að nálgast regnsvæði og vestantil á landinu verður vaxandi sunnanátt síðdegis og búast má við rigningu þar í kvöld.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt 5-13 m/s, en hvassara í vindstrengjum á Vesturlandi fyrir hádegi. Víða talsverð rigning eða súld, en þurrt austanlands fram á síðdegið. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag: Vestan og suðvestan 5-10. Skýjað með köflum og sums staðar dálitlir skúrir. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á mánudag: Breytileg átt 3-10 og rigning með köflum í flestum landshlutum. Hiti 10 til 15 stig. Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og birtir víða upp. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast sunnanlands. Á miðvikudag og fimmtudag: Suðlæg átt og smáskúrir, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira