Lífið

Lóa boratoríum glæðir gamlar styttur lífi

Íris Hauksdóttir skrifar
Listakonan Lóa Hjálmtýsdóttir stendur fyrir spennandi sýningu um þessar mundir. 
Listakonan Lóa Hjálmtýsdóttir stendur fyrir spennandi sýningu um þessar mundir. 

Lóa Hjálmtýsdóttir, listakona og söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast er margt til lista lagt. Á morgun opnar hún listasýningu þar sem hún glæðir lífi í gamlar styttur.

Hugmyndina segir Lóa hafa sprottið þegar hún var barn og sá stytturnar í sjónvarpsskáp í Breiðholti. Mörgum árum síðar fór hún svo að taka eftir sömu styttum í Góða hirðinum og ákvað að sanka þeim að sér án þess þó að vita beinlínis hvað hún hygðist gera við þær. 

Gamlar styttur öðlast nýtt líf í meðförum Lóu.aðsend

„Maja systir hjálpaði mér að safna þeim og dag einn kynntist hún konu í Góða hirðinum sem sá Maju vera að bagsa með fulla körfu af styttum. Konan spurði hana hvort hana vantaði Hugsuðinn og nokkrum dögum síðar var ég stödd á heimili í Hafnarfirði hjá ókunnugri konu og gekk út með Hugsuðinn í fanginu. 

Lóa stendur fyrir sýningunni Hlið vítis II sem haldin er í Gryfjunni í Ásmundarsal.aðsend

Svo komst ég að því að Hugsuðurinn væri hluti af stærra samhengi í verkinu Hlið vítis og þegar ég sá mynd af því þá tók ég eftir því að upprunalega verkið er eins og risastór sjónvarpsskápur fullur af styttum.“

Tekur fagnandi á móti styttum og leir sem fólk vill losa sig við

Sýningin ber heitið Hlið vítis II og er haldin Gryfjunni í Ásmundarsal fimmtudaginn 10. ágúst frá 19-21. Sjálf hefur Lóa unnið stíft að endurgerð listaverksins La Porte L’enfer eftir franska höggmyndalistamanninn Rodin fyrir opnun sýningarinnar. Opnunin er lokahnykkurinn á fjögurra vikna opinni vinnustofu í Gunnfríðargryfju. Sýningin er styrkt af Myndstef.

Lóa tekur fagnandi á móti leir og styttum sem óska eftir nýju lífi. aðsend

Á meðan vinnustofunni stendur tekur Lóa líka við styttum og leir sem fólk vill losa sig við. Öllum er velkomið að kíkja á listakonunni við störf sín í Gryfjunni á meðan hún vinnur að verkinu. Afraksturinn verður að lokum kynntur þann 10. ágúst.

Hér fyrir neðan má sjá stórskemmtilegt viðtal Snæbjörns Ragnarssonar við Lóu í þættinum Snæbjörn talar við fólk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.