Djúp lægð veldur vaxandi austanátt sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 9. ágúst 2023 07:11 Hiti verður á bilinu fimm til átján stig, hlýjast suðvestanlands. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en öllu vindasamara austantil. Búast má við léttskýjuðu veðri suðvestantil, en annars skýjað með köflum og lítilsháttar vætu við austurströndina.
Það snýst svo í austan fimm til þrettán metra á sekúndu og þykknar upp sunnanlands í kvöld með smá vætu syðst. Hiti verður á bilinu fimm til átján stig, hlýjast suðvestanlands. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að austur við Noreg sé nú víðáttumikil og djúp lægð, sem hafi valdið úrhellisregni og stórtjóni í Noregi og Svíþjóð. Hún hreyfist norðvestur á bóginn, en komi lítið við sögu hér á landi og valdi varla nema með strekkings norðvestanátt og smá vætu við norðausturströndina í dag. „Önnur álíka öflug lægð langt suðvestur í hafi mun hafa nokkru meiri áhrif, en hún þokast norðaustur og veldur vaxandi austanátt sunnantil í kvöld og rigningu þar í nótt. Á morgun og föstudag er lægðin djúpt suður af landinu og austanáttin heldur velli með smá vætu sunnan- og vestantil, en lengst af þurrviðri á Norðausturlandi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og norðaustan 8-15 m/s, hvassast við suðurströndina, en hægari norðaustantil. Dálítil væta sunna- og vestanlands framan af degi, en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á föstudag: Austan- og norðaustan 8-15 m/s, hvassast syðst. Rigning víða um land, en úrkomulítið norðan heiða. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á laugardag: Fremur hæg norðaustlæg átt og skýjað að mestu, lítilsháttar væta syðra en þokusúld úti við norður- og ausutrströndina. Hlýtt í veðri, einkum inn til landsins. Á sunnudag og mánudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum, en stöku skúrir inn til landsins og líkur á þokulofti við sjávarsíðuna um kvöldið. Hlýtt víða um land, en heldur svalara fyrir norðan og austan. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt, þurrt að mestu og áfram hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira