Víða má búast við áframhaldandi vætu Atli Ísleifsson skrifar 29. júní 2023 07:21 Hiti á landinu verður á bilinu sjö til fimmtán stig í dag. Hlýjast verður suðaustanlands. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli austan stormi við suðurströndina á þriðjudag er enn að stýra veðrinu á landinu og nú í morgunsárið er lægðin stödd við norðurströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin muni valda vestlægri átt í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu og að víða megi búast við vætu. Minnsta úrkoman verði líklega á Suðausturlandi og Austfjörðum, en þar megi þó búast við einhverjum dropum. Hiti verður á bilinu sjö til fimmtán stig þar sem hlýjast verður suðaustanlands. „Á morgun þokast áðurnefnd lægð til norðurs og verður miðja hennar yfir landinu. Lægðin verður þá orðin gömul og þrýstiflatneskja í miðju hennar, stundum er þá talað um flatbotna lægð. Það þýðir að vindur nær sér ekki á strik á morgun, vindátt breytileg og hraðinn 3-8 m/s. Enn er þó nægur raki eftir í lægðinni og á morgun má víða búast við skúrum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og allvíða skúrir. Hiti 7 til 14 stig. Á laugardag: Norðaustan 5-13 og dálítil væta norðanlands. Hægari sunnantil og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðaustanátt og dálítil rigning með köflum, en að mestu þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast sunnanlands. Á mánudag: Norðaustlæg átt og bjart með köflum vestantil, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðaustanátt og smáskúrir, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 7 til 16 stig, mildast suðvestanlands.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira