Lagið er unnið í samvinnu við Halldór Gunnar en Klara segir þau hafa mjög sambærilegan smekk þegar það kemur að því að semja og finna melódíur og texta.
Hér má sjá textamyndband við lagið Nýjan stað:
„Það er eiginlega búið að standa til að semja lag saman síðan við unnum saman fyrst. Ég kynntist Halldóri þegar ég söng í fyrsta skipti á Þjóðhátíð fyrir tveimur árum og ég söng með honum og bandinu hans Albatross í upphitun fyrir Brekkusöng. Ég er eiginlega búin að reyna draga hann með mér í allt sem ég geri síðan þá,“ segir Klara. Saman mynda þau gott tvíeyki og hefur ekki verið erfitt fyrir þau að fá hugmyndir þegar það kemur að lagasmíðinni.

„Það hefur hingað til verið eins og innblásturinn finni okkur frekar en við hann. Ef við fengjum að ráða þá værum við að semja einhverja blöndu af Ísland er land þitt, Harry Styles og Bítlunum í hvert skipti.
Við settumst niður með það að markmiði að bara sjá hvað myndi gerast þennan dag og úr varð þetta lag um skilnað og sambandsslit sem endaði svo persónulegt að það eiginlega kom ekki til greina að neinn annar myndi syngja það en ég sjálf.“
Lagið Nýjan stað er á persónulegum nótum.
„Textinn talar um hvernig allt er breytt á einu augnabliki og framtíð sem maður sá fyrir sér með þessari manneskju er horfin. En svo er þetta litla móment í lok sambandsslita eða skilnaðar þar sem maður veit að maður gerði rétt og á sama tíma áttar sig á því að það er eitthvað fallegt og betra framundan. Nýjan stað vísar í tilhugsunina að finna eða vera búin að finna nýjan stað fyrir hjartað sitt og elska aftur.“

Það er nóg um að vera hjá Klöru sem er spennt fyrir viðburðaríku sumri.
„Ég er að syngja út um allt í sumar og ætla að halda tónleika í Bæjarbíói þann 15. júlí. Þar fyrir utan fékk ég þann heiður að vera Fjallkona Hafnarfjarðar þann 17. júní og ég ætla að brjóta hefðir örlítið með minni túlkun á henni um helgina.
Ég mun flytja ávarpið í formi lags sem ég fékk einmitt Halldór með mér í að semja. Ég flyt lagið og ávarpið kl 13:30 á laugardaginn ásamt karlakórnum Þrestir. Ég hlakka mikið til.“
Hér má hlusta á lagið á streymisveitunni Spotify.