Veður

Tals­verð rigning á landinu og hiti að sau­tján stigum norð­austan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Loftmassinn yfir landinu er ágætlega hlýr og má búast við vænum hitatölum í hnjúkaþey á norðaustanverðu landinu, sextán til sautján stig þegar best lætur.
Loftmassinn yfir landinu er ágætlega hlýr og má búast við vænum hitatölum í hnjúkaþey á norðaustanverðu landinu, sextán til sautján stig þegar best lætur. Vísir/Vilhelm

Lægð er nú stödd við Hvarf og bárust skil frá henni yfir landið seint í gær sem skilar sér í aukinni rigningu í nótt og framan af degi í dag. Búast má við talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu og fylgir með sunnan strekkingur, þó reyndar hafi lægt vestast á landinu.

Á vef Veðurstofunnar segir að skilin færist til austurs og á eftir skilunum taki við suðvestan gola eða kaldi með skúrum.

„Þessi veðraskipti gerast fyrst vestast á landinu, en austanlands dregur úr vindi og léttir til undir kvöldið. Loftmassinn yfir landinu er ágætlega hlýr og má búast við vænum hitatölum í hnjúkaþey á norðaustanverðu landinu, 16-17 stig þegar best lætur.

Á morgun nálgast síðan lægð beint úr suðri og það gengur í austan og norðaustan 5-13 á með rigningu, fyrst um landið sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig. Spár gera síðan ráð fyrir að miðja þessara lægðar gangi til norðurs yfir austanvert landið. Það þýðir að á sunnudaginn snýst í norðlægari átt með úrkomu og kólnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 11 í dag. Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Gengur í austan og norðaustan 5-13 m/s með rigningu, fyrst um landið sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig.

Á sunnudag: Norðvestan og vestan 8-15. Víða rigning eða slydda, en þurrt að kalla Suður- og Vesturlandi seinnipartinn. Snjókoma á heiðum á norðanverðu landinu. Kólnandi veður.

Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt og víða slydda eða snjókoma um tíma, en rigning sunnanlands. Vægt frost á norðanverðu landinu, en hiti 1 til 6 stig sunnantil að deginum.

Á þriðjudag: Vaxandi sunnanátt, þykknar upp og fer að rigna, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hlýnandi veður.

Á miðvikudag: Sunnan- og suðvestanátt með súld eða rigningu, en þurrt og bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á fimmtudag (uppstigningardagur): Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 13 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×