Kórdrengir gjaldþrota Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2023 14:31 Úr leik Kórdrengja og FH í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fyrra. vísir/diego Fótboltafélagið Kórdrengir hefur verið lýst gjaldþrota. Kórdrengir hættu við þátttöku í Lengjudeildinni í sumar eftir að hafa spilað þar tímabilin 2021 og 2022. Þeirra sól skein skærast sumarið 2021 þegar liðið hafnaði í fjórða sæti Lengjudeildarinnar.
Í Lögbirtingarblaðinu kemur fram að Jón Ögmundsson hæstaréttarlögmaður hafi verið skipaður skiptastjóri yfir búi Kórdrengja samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Skorað er á alla sem telja sig eiga kröfur í bú Kórdrengja að lýsa þeim innan tveggja mánaða að því er fram kemur í tilkynningu frá skiptastjóra í Lögbirtingarblaðinu. Uppgangur Kórdrengja undanfarin ár vakti mikla eftirtekt. Liðið hóf keppni í 4. deild 2017 en fjórum árum seinna endaði það í 4. sæti Lengjudeildarinnar, þeirrar næstefstu. Í fyrra lentu Kórdrengir í 5. sæti Lengjudeildarinnar og komust í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins. Eftir síðasta tímabil hætti Davíð Smári Lamude sem þjálfari Kórdrengja og tók við Vestra. Óvissa ríkti um þátttöku Kórdrengja í Lengjudeildinni í sumar en liðið mætti ekki til leiks í nokkra leiki í Lengjubikarnum. Viðræður við FH um að félagið tæki yfir Kórdrengi sigldu í strand og á endanum var greint frá því að Kórdrengir myndu ekki taka þátt á Íslandsmótinu. Ægir frá Þorlákshöfn tók sæti þeirra í Lengjudeildinni. Þetta hafði svo keðjuverkandi áhrif. Þannig tók KFG sæti Ægis í 2. deild, Hvíti riddarinn sæti KFG í 3. deild, Hamar sæti Hvíta riddarans í 4. deild og Álafoss sæti Hamars í 5. deild.
Kórdrengir Gjaldþrot Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira