Er tilbúinn fyrir Eurovision sviðið en leynd hvílir yfir laginu Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 21. apríl 2023 15:31 Daði Freyr fær loksins að stíga á Eurovision sviðið þann 13. maí. Baldur Kristjánsson „Ég er mjög spenntur. Ég er náttúrlega búinn að vita af þessu núna í smá stund og búinn að undirbúa dálítið og þetta er að verða tilbúið,“ segir tónlistarmaðurinn Daði Freyr sem fær loksins stíga á Eurovision sviðið þann 13. maí næstkomandi.
Greint var frá því á mánudaginn að Eurovision-farinn Daði Freyr myndi stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision í ár. Keppnin er að þessu sinni haldin í Liverpool og er það söngkonan Diljá Pétursdóttir sem keppir fyrir Íslands hönd með laginu vinsæla Power. Daði og Gagnamagnið voru fulltrúar Íslands í Eurovision árið 2020. Lag þeirra Think About Things var talið eitt sigurstranglegasta lagið í keppninni. Vegna útbreiðslu kórónuveirunnar var keppninni hins vegar aflýst og steig Daði því aldrei á svið. Ári síðar fengu Daði og Gagnamagnið annað tækifæri í Eurovision og kepptu þá með laginu 10 Years. Óheppnin var þó ekki hætt að elta þau, því einn meðlimur hljómsveitarinnar greindist með Covid-19 og steig hljómsveitin því aldrei á svið. Þess í stað var notuð upptaka frá æfingu hópsins sem skilaði Íslandi 4. sæti. Það er næstbesti árangur sem Ísland hefur náð í Eurovision. Árið 2021 kepptu Daði og Gagnamagnið í Eurovision með laginu 10 Years. Þau stigu þó aldrei á svið, sökum þess að einn meðlimur hljómsveitarinnar greindist með Covid. Þess í stað var notuð upptaka frá æfingu hópsins.Getty/Dean Mouhtaropoulos Flytur lag frá Liverpool en setur það í Daðabúning Nú er hins vegar komið að því að Daði fái loksins að stíga á Eurovision sviðið. Hann mun koma fram á úrslitakvöldinu ásamt fleiri fyrrum Eurovision-kempum, má þar meðal annars nefna hina sænsku Corneliu Jakobs og hina ísraelsku Nettu. Um er að ræða sérstakt lokaatriði á úrslitakvöldinu sem nefnist Liverpool Songbook og má gera ráð fyrir því að öllu verði tjaldað til. „Ég tek bara eitt lag, frá Liverpool,“ sagði Daði í viðtali í Bítinu í morgun. Daði má lítið segja um atriðið en segist þó vissulega ætla að setja lagið sem hann mun flytja í „Daðabúning“. „Ég geri ekkert nema gera það,“ segir hann. Eins og áður segir mun Daði koma fram ásamt fleiri Eurovision-stjörnum og er Daði að fara að hitta þær allar í fyrsta skipti. „Ég náttúrlega hitti ekkert af þessu liði þannig séð. Ég fór ekki 2020 og síðan vorum við mest bara inni á hóteli og okkur var haldið svolítið í sundur 2021,“ segir hann og viðurkennir að það hafi verið afar leiðinlegt að hanga inni á hótelherbergi á meðan allir voru að halda upp á Eurovision. View this post on Instagram A post shared by Daði Freyr (@dadimakesmusic) Tilbúinn fyrir stóra sviðið Daði Freyr er orðið stórt nafn í Eurovision heiminum. Hann á orðið stóran Eurovision-aðdáendahóp og mun brátt fá að spila fyrir alla Evrópu á stóra sviðinu. Aðspurður hvort það sé ekki skrítin tilfinning fyrir sveitastrákinn segir hann: „Ég veit það ekki. Ég er búinn að vera svo mikið inni í þessu að mér finnst þetta bara frekar eðlileg þróun. Ég er meira að spá í allt í kringum þetta. Við Árný ætlum að vera alla vikuna í Liverpool að prómóta og plögga og gera alls konar. Ég er eiginlega meira þar heldur en að vera að spá í því hvernig það verður að standa á sviðinu og syngja. Ég er tilbúinn í það.“ Það hefur verið mikið að gera hjá Daða undanfarið, of mikið að eigin sögn. Hann var að spila út um allt og segist hann til að mynda hafa misst af afmælisdögum beggja barna sinna. „Ég spilaði eiginlega aðeins of mikið fannst mér. Þetta var aðeins meira en mig langar að gera,“ segir hann. Árið í ár verður því ögn rólegra. Eftir Eurovision taka við nokkrar tónlistarhátíðir í sumar, mánaðarlangt tónleikaferðalag í september og annað tónleikaferðalag í lok árs. Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið við Daða í heild sinni.
Bítið Eurovision Tónlist Tengdar fréttir Daði Freyr fær loksins að stíga á Eurovision sviðið í beinni útsendingu Tónlistarmaðurinn og Eurovision-farinn Daði Freyr mun stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision í ár. Þetta tilkynnti Daði á Facebook síðu sinni rétt í þessu. 17. apríl 2023 11:31 Daði Freyr bugaður eftir Eurovision en ný tónlist á leiðinni Daði Freyr er kominn af stað í tónsmíðum á ný eftir að hafa verið á tónleikaferðalagi seinni hluta síðari árs. Hann segist fyrst nú vera að ná áttum á ný eftir Eurovision ævintýrið. 30. janúar 2022 09:50 Seinheppni Árnýjar og Daða Freys heldur áfram Eurovision-parið Árný Fjóla Ásmundsdóttir og Daði Freyr Pétursson þarf að finna sér nýtt húsnæði sem allra fyrst í Berlín í Þýskalandi. Stóra lekamálið í íbúð þeirra hefur dregið dilk á eftir sér. 5. júlí 2021 16:56 Næstbesti árangur Íslands frá upphafi Daði og Gagnamagnið enduðu í fjórða sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, með lagið 10 Years. Um er að ræða næstbesta árangur Íslands í keppninni frá upphafi. 22. maí 2021 23:21 Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Fleiri fréttir Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Sjá meira
Daði Freyr fær loksins að stíga á Eurovision sviðið í beinni útsendingu Tónlistarmaðurinn og Eurovision-farinn Daði Freyr mun stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision í ár. Þetta tilkynnti Daði á Facebook síðu sinni rétt í þessu. 17. apríl 2023 11:31
Daði Freyr bugaður eftir Eurovision en ný tónlist á leiðinni Daði Freyr er kominn af stað í tónsmíðum á ný eftir að hafa verið á tónleikaferðalagi seinni hluta síðari árs. Hann segist fyrst nú vera að ná áttum á ný eftir Eurovision ævintýrið. 30. janúar 2022 09:50
Seinheppni Árnýjar og Daða Freys heldur áfram Eurovision-parið Árný Fjóla Ásmundsdóttir og Daði Freyr Pétursson þarf að finna sér nýtt húsnæði sem allra fyrst í Berlín í Þýskalandi. Stóra lekamálið í íbúð þeirra hefur dregið dilk á eftir sér. 5. júlí 2021 16:56
Næstbesti árangur Íslands frá upphafi Daði og Gagnamagnið enduðu í fjórða sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, með lagið 10 Years. Um er að ræða næstbesta árangur Íslands í keppninni frá upphafi. 22. maí 2021 23:21