Barcelona vann góðan 1-0 útisigur er liðið heimsótti Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í dag.
Chelsea sló út ríkjandi Evrópumeistara Lyon í síðustu umferð, en nú tekst enska liðið á við hitt liðið sem lék til úrslita í fyrra, Barcelona.
Hin norska Caroline Hansen skoraði eina mark leiksins er hún kom gestunum frá Barcelona í forystu strax á fjórðu mínútu. Þrátt fyrir nokkur ákjósanleg færi heimakvenna tókst þeim ekki að jafna metin og Barcelona hafði því betur 1-0.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube-rás DAZN og hægt er að horfa á leikinn aftur í spilaranum hér fyrir neðan.