Samfélagið slegið vegna riðutilfella og bændur uggandi Fanndís Birna Logadóttir skrifar 15. apríl 2023 13:27 Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir mikilvægt að huga meðal annars að andlegri heilsu bændanna. Aðsend Riðutilfelli sem hafa nú greinst á tveimur bæjum í Miðfirði eru mikið áfall fyrir samfélagið að sögn sveitarstjóra Húnaþings vestra. Boðað hefur verið til íbúafundar í næstu viku til að fara yfir stöðuna en margir eru uggandi um framhaldið. Stórauka þurfi fé í riðuvarnir og rannsóknir að mati sveitarstjóra.
Tvö tilfelli riðu hafa nú greinst í Miðfirði en síðdegis í gær greindi Matvælastofnun frá því að riða hafi greinst á bænum Syðri-Urriðaá, nálægt Bergstöðum þar sem riða kom upp í síðustu viku, en aflífa þarf um 720 kindur. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir þetta áfall fyrir samfélagið. „Það eru auðvitað bara allir mjög slegnir og hugur okkar er auðvitað fyrst og síðast hjá þessum bændum sem að verða fyrir þessum hörmungum. Það verður líka að segjast að það eru bara mjög margir aðrir bændur uggandi umframhaldið,“ segir Unnur en verið er að kanna hvort riða hafi dreift sér víðar. Ekki er unnt að brenna féð frá Syðri-Urriðaá vegna bilunar í sorpeyðingarstöðinni Kölku á Suðurnesjum. Takmarkaðir valmöguleikar eru í boði en því verði að ljúka á næstu dögum þar sem það styttist í sauðburð undir lok mánaðar. „Við erum bara í samtali núna við umhverfisstofnun varðandi mögulegar lausnir á því,“ segir Unnur en það gæti komið til greina að urða hræin. „Það er ein hugmyndin sem er uppi en það eru margar hugmyndir á borðinu og það samtal er bara í gangi.“ Andlegt áfall og fjárhagslegt tjón Á þriðjudag hefur verið boðað til umræðufundar fyrir íbúa til að fara yfir stöðuna þar sem fulltrúar frá Bændasamtökunum og MAST verða með erindi. „Þar mun líka hún Karólína Elísabetardóttir í Hvammshlíð vera með erindi en hún hefur staðið fyrir viðamiklum riðurannsóknum undanfarin misseri. Og svo munum við líka fá erindi frá Jóhönnu Bergsdóttur sálfræðingi, því það er auðvitað mjög mikilvægt að huga síðan að andlegri heilsu þeirra sem að verða fyrir þessum hörmungum,“ segir Unnur. Ljóst sé að atburðum sem þessi fylgi gríðarleg áhrif á íbúana og samfélagið í heild. „Þetta eru auðvitað tvö stór bú þannig það er ekki bara þetta andlega tjón og það áfall sem við verðum fyrir heldur líka fjárhagslegt tjón. Þannig þetta getur haft mun víðtækari áhrif heldur en eru komin fram,“ segir hún. Í framtíðinni þurfi betur að huga að sauðfjárveikivörnum, þar sem girðingar skipta einna helst miklu máli. „Því miður hefur fjármagn sem hefur runnið til þeirra undanfarin ár og áratugi verið af allt of skornum skammti og það þarf að bæta þar verulega í ef við ætlum að stemma stigu við þessu á komandi árum,“ segir Unnur. „Svo er það auðvitað partur af þessum forvörnum að setja stóraukið fé í rannsóknir á riðunni og þeim verndandi arfgerðum sem að hafa verið að koma fram til þess að það sé hægt með markvissum hætti hægt að rækta sjúkdóminn úr stofninum á komandi árum. Það er stærsta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir,“ segir hún enn fremur.
Dýr Húnaþing vestra Dýraheilbrigði Riða í Miðfirði Tengdar fréttir Skera niður allt fé á öðrum bæ í Miðfirði Við rannsókn á sýnum úr kindum sem keyptar voru af bænum Bergstöðum í Miðfirði, þar sem riða greindist á dögunum, greindist ein kind á bænum Syðri-Urriðaá með riðu. Allt fé á bænum verður skorið niður. 14. apríl 2023 17:28 Líkleg riða á öðru stóru býli Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að riða hafi greinst á öðru býli í Miðfjarðarhólfi. Smitið hefur ekki verið staðfest endanlega en yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun segir unnið út frá því að um riðu sé að ræða. 14. apríl 2023 11:06 Uggandi vegna mögulegrar dreifingar riðunnar Búið er að aflífa um sjö hundruð kindur á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi vegna riðu sem kom þar upp. Tuttugu kindur úr hjörðinni höfðu verið fluttar á nokkra bæi í nágrenninu og yfirdýralæknir segir í forgangi að greina sýni úr þeim. Reynist þær sýktar þarf að aflífa fé á þeim bæjum. 11. apríl 2023 12:03 Alltaf skelfilegt en verst á þessum árstíma Ari Guðmundsson, bóndi á Bergsstöðum í Húnaþingi vestra, segir það vera svakalegt högg að þurfa að lóga öllum 690 kindum á bænum sínum. Riða greindist í sauðfé á bænum og fór Matvælastofnun fram á að kindunum yrði lógað. 4. apríl 2023 11:10 Lóga hátt í sjö hundruð kindum vegna riðu í Miðfirði Hátt í sjö hundruð kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi eftir að riða greindist þar. Þetta er í fyrsta skipti sem riða greinist á sóttvarnasvæðinu sem nefnist Miðfjarðarhólf. 3. apríl 2023 13:47 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir Hafnar því að hafa reynt að bola sér inn á sjúkrastofu Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Sjá meira
Skera niður allt fé á öðrum bæ í Miðfirði Við rannsókn á sýnum úr kindum sem keyptar voru af bænum Bergstöðum í Miðfirði, þar sem riða greindist á dögunum, greindist ein kind á bænum Syðri-Urriðaá með riðu. Allt fé á bænum verður skorið niður. 14. apríl 2023 17:28
Líkleg riða á öðru stóru býli Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að riða hafi greinst á öðru býli í Miðfjarðarhólfi. Smitið hefur ekki verið staðfest endanlega en yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun segir unnið út frá því að um riðu sé að ræða. 14. apríl 2023 11:06
Uggandi vegna mögulegrar dreifingar riðunnar Búið er að aflífa um sjö hundruð kindur á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi vegna riðu sem kom þar upp. Tuttugu kindur úr hjörðinni höfðu verið fluttar á nokkra bæi í nágrenninu og yfirdýralæknir segir í forgangi að greina sýni úr þeim. Reynist þær sýktar þarf að aflífa fé á þeim bæjum. 11. apríl 2023 12:03
Alltaf skelfilegt en verst á þessum árstíma Ari Guðmundsson, bóndi á Bergsstöðum í Húnaþingi vestra, segir það vera svakalegt högg að þurfa að lóga öllum 690 kindum á bænum sínum. Riða greindist í sauðfé á bænum og fór Matvælastofnun fram á að kindunum yrði lógað. 4. apríl 2023 11:10
Lóga hátt í sjö hundruð kindum vegna riðu í Miðfirði Hátt í sjö hundruð kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi eftir að riða greindist þar. Þetta er í fyrsta skipti sem riða greinist á sóttvarnasvæðinu sem nefnist Miðfjarðarhólf. 3. apríl 2023 13:47