Lífið

Hlegið og grátið á frum­sýningu nýrra þátta Ragn­hildar Steinunnar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarsson sem standa saman á bak við þættina.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarsson sem standa saman á bak við þættina. Ragnar Visage

Það var tvöföld gleði í Háskólabíói síðasta fimmtudag þegar fyrsti þáttur í heimildaþáttaröðinni TVÍBURAR var frumsýndur fyrir troðfullum sal. Þættirnir eru hugarfóstur sjónvarpskonunnar Ragnhildar Steinunnar sem eignaðist eineggja tvíbura fyrir fjórum árum með eiginmanni sínum Hauki Inga Guðnasyni.

Í þessari sex þátta seríu er fjallað um flestallt sem snýr að tvíburum allt frá því líffræðilega undri sem á sér stað þegar tvíburar verða til yfir í þau sterku tengsl sem virðast fylgja flestum tvíburapörum út lífið.

Frumsýningargestir virtust skemmta sér konunglega á sýningunni en meðal gesta mátti sjá Ragnhildi Gísladóttur, Ólaf Egilsson, Birgittu Haukdal, Evu Laufeyju Hermannsdóttur, Birnu Einarsdóttur, Eddu Hermannsdóttur, Loga Bergmann, Ingu Lind Karlsdóttur, Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur og Unnstein Manuel Stefánsson. Í þetta skiptið voru það hinsvegar ekki þessi landskunnu andlit sem fönguðu athygli ljósmyndarans heldur voru það þeir fjölmörgu tvíburar sem voru samankomnir. Ragnar Visage smellti myndum af nokkrum þeirra.

Sýnt frá tvíburafæðingu

Í fyrsta þættinum var meðal annars fylgst með tvíburafæðingu en bíógestir ýmist gripu fyrir augun, grétu eða fögnuðu þegar þeir urðu vitni að þeirri kraftaverka frammistöðu sem Alexandra Ósk Jónsdóttir sýndi þegar hún kom dætrum sínum í heiminn með einlægum stuðningi frá barnsföður sínum Arnari Hlyni Elliot Magnússyni.

Þættirnir eru unnir af tveggja manna teymi, þeim Ragnhildi Steinunni og Eiríki Inga Böðvarssyni. TVÍBURAR hefjast á RÚV á annan í páskum.

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Eiríkur Ingi Böðvarsson.Ragnar Visage
Elstu eineggja tvíburar landsins Hlaðgerður og Svanhildur 100 ára.Ragnar Visage
Hildur Rún og Hekla Sif Ingvadætur.Ragnar Visage
Hans og Jens Sævarssynir.Ragnar Visage
Eva Ruza og Tinna Ruza sem segjast næstum tvíburar.Ragnar Visage
Atli Freyr og Breki Freyr Ágústssynir.Ragnar Visage
Elín og Jakobína Jónsdætur.Ragnar Visage
Elfa Sif, Hildur Rún, Hekla Sif og Eyrún Jana.Ragnar Visage
Júlí Róbert og Felix Leó Helgasynir.Ragnar Visage
Edda Hermannsdóttir, Martina Nardini, Helga Arnardóttir, Sigrún Ósk og Hafdís Jónsdóttir.Ragnar Visage
Ásta Isabella Kent og Alice Viktoría Kent.Ragnar Visage
Tvíburarnir Konráð og Guðrún Andrésbörn.Ragnar Visage
Rakel og Rebekka Pálsdætur.Ragnar Visage
Hlaðgerður og Svanhildur.Ragnar Visage
Bríet Emma og Iðunn Salka með foreldrum Alexandra Ósk og Arnar Hlynur.Ragnar Visage





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.