Heimsókn í skóla: Frítt croissant og umhverfismálin rædd í FÁ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. mars 2023 17:31 Eva Margrét Guðnadóttir hitti nemendur FÁ sem kepptu fyrir hönd skólans í FRÍS. Samsett Þriðja viðureign átta liða úrslita Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, eða FRÍS, fór fram síðastliðinn miðvikudag þar sem FÁ og FSu áttust við. Eins og síðustu ár tók Eva Margrét Guðnadóttir púlsinn á nemendum skólanna fyrir viðureignina.
Eva skellti sér í Fjölbrautaskólann við Ármúla þar sem hún reyndi sitt besta til að gera grín að skólanum og hverfinu í kring, en gafst að lokum upp og viðurkenndi að þarna væri líklega bara ágætt að búa. Á milli þess sem Eva reyndi fyrir sér í spilaði borðtennis og hélt langa ræðu um umhverfismál ræddi hún við liðsmenn FÁ sem keppa fyrir hönd skólans í FRÍS. FÁ mátti að lokum þola tap gegn FSu í FRÍS síðastliðinn miðvikudag og skólinn er því úr leik, en FSu er á leið í undanúrslit. Heimsókn Evu í FÁ má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Heimsókn í skóla: Frítt croissant og umhverfismálin rædd í FÁ Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Tækniskólinn og Menntaskólinn á Tröllaskaga eigast við í átta liða úrslitum í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. Bein útsending hefst klukkan 19:30.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Besta sætið: Verðandi meistarar eða meiðslapésar? Sport „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Enski boltinn Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ Fótbolti