Skoðun

Öldunga­ráð VR fyrir eldri borgara sem við verðum öll

Sigurður Sigfússon. skrifar

Ég hef átt því láni að fagna að vera fulltrúi í stjórn VR frá árinu 2000. Á þeim tíma hafa 6 formenn verið starfandi og ég hef unnið með þeim öllum af bestu getu.Áherslur mínar í gegnum árin hafa ávallt verið að launakjör séu í samræmi við þá framleiðniaukningu sem starfsmenn leggja til með vinnuframlagi sínu.

Mér hefur fyrir hönd stjórnar VR verið treyst fyrir formennsku í orlofsnefnd VR í 8 ár og á þeim tíma hefur orlofshúsum verið fjölgað mikið. Ég er ákaflega stoltur af því að hafa lagt mitt af mörkum til þess að fleiri félagsmenn VR geti notið dvalar í orlofshúsum félagsins sem eru í dag 84 um allt land.

Í dag er ég skilgreindur sem eldri borgari sem er besta mál en ég er svo lánssamur að fá að starfa í hlutastarfi á mínum gamla vinnustað við og sem fulltrúi minnar kynslóðar í Öldungaráði VR.

Öldungaráð er starfandi innan VR og helstu áherslur ráðsins eru að mótframlag atvinurekenda falli ekki niður við 70 ára aldur kjósi félagsmenn að vinna áfram og að VR félagar njóti þannig áfram umsaminna launakjara.

Þá verði í næstu kröfugerð VR tekin skref til að leiðrétta skerðingar á greiðslum frá TR vegna lífeyrisgreiðslna sem eru undir meðaltekjum á vinnumarkaði. Einhliða skerðingar sem bitna verulega illa á eldri borgurum sem ekki eiga lífeyrisrétt sem stendur undir meðaltekjum verður að aflétta.

Jafnframt verði gert átak í húsnæðismálum eldri borgara þar sem ríki og sveitarfélög tryggi að ráðist verði í byggingu 1.167 íbúða á félagssvæði VR sem uppfylli kröfur eldri borgara. Áhersla verði á hagkvæmt leiguhúsnæði með aðgengi að þjónustu í samræmi við breytilegar þarfir þessa hóps.

Sérstakar kröfur verði gerðar um lagabreytingar sem geri lífeyrissjóðum landsmanna kleift að koma að uppbyggingu íbúða fyrir eldri borgara.

Lífeyrissparnaður í séreign verði gerð skattfrjáls til þess að auka hvata til séreignarsparnaðar.

Ég hef í dag enga hagsmuni af því að starfa í stéttarfélagsbaráttu en einlægan áhuga á að nýta reynslu mína til góðs fyrir komandi kynslóðir.Ég óska eftir stuðningi þínum kæri VR félagi til stjórnarsetu næstu tvö ár þar sem ég hef áhuga á að vinna þessum hagsmunamálum eldri borgara brautargengi

Höfundur er frambjóðandi til stjórnar VR




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×