Skytturnar komnar með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. 25. febrúar 2023 16:57 Gabriel Martinelli skorar eina mark leiksins gegn Leicester í dag. Vísir/Getty Arsenal er komið með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Leicester í dag. Sigurinn í dag var sanngjarn. Arsenal var mun sterkari aðilinn í leiknum og Leicester átti aðeins eitt skot að marki í leiknum og það hitti ekki markrammann. Eina mark leiksins kom strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Gabriel Martinelli fékk þá sendingu í gegnum vörnina frá Leandro Trossard og kláraði færið vel. Bukayo Saka bætti við marki í síðari hálfleiknum en það var dæmt af vegna rangstöðu. Með sigrinum er Arsenal komið með fimm stiga forskot á Manchester City sem leikur nú á eftir gegn Bournemouth. Enski boltinn
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti