Í nótt voru 72 tímar liðnir frá því skjálftinn, 7,8 að stærð, reið yfir. Sá tímagluggi er sagður mikilvægur, því eftir að hann líður eru litlar líkur taldar á að fólk finnist á lífi í húsarústunum. Fjöldi fólks er nú á vergangi eftir að hafa misst heimili sín og án skjóls, vatns og rafmagns eru miklar líkur á að margir muni láta lífið næstu daga.
Heyrðu í fólki í rústunum
Níu manna íslenskt teymi á vegum Landsbjargar og landhelgisgæslunnar vinnur nú að svæðisstjórn á Gaziantep svæðinu.
Sólveig Þorvaldsdóttir fer fyrir íslenska hópnum en hún segir verkefni dagsins hafa falist í að samhæfa tengslin við aðrar sveitir, skipuleggja flutning auk vinnu við hugbúnað sem safnar upplýsingum til að forgangsraða verkefnum. Hún segir þó ekki hafa verið þörf á að forgangsraða neinu í dag.
„Það er svo mikið af fólki sem þurfti að bjarga að þegar sveitirnar voru að fara á milli húsa í götu þá bara heyrðu þau í fólki. Þannig það þurfti ekkert að forgangsraða. Þau fóru bara í næsta hús og næsta hús.“
Enn finnst lifandi fólk
Alþjóðlegu björgunarsveitinni sem Íslendingarnir eru partur af tókst að bjarga tuttugu og fjórum lifandi úr rústum húsa í gær og hafa bjargað nokkrum til viðbótar í dag.
„Ein sveit fann til dæmis fimm lifandi í dag,“ segir Sólveig. „Það er ennþá verið að finna fullt af lifandi fólki. Auðvitað dvínar þetta með hverjum degi. En það er ennþá þannig að það er verið að finna lifandi fólk.“
En þrátt fyrir að enn finnist fólk á lífi er því miður mun algengara að lík finnist í rústunum. Í spilaranum hér að ofan má sjá viðtal við mann sem hafði unnið að því í þrjá daga að grafa lík frænku sinnar úr rústum heimilis síns.
„Við náðum henni úr rústunum, undan steinunum. Öll byggingin hrundi. Sjúkrabílinn og björgunaraðilar komu seinna og náðu henni. Við höfðum unnið í þrjá daga að því að ná henni út,“ sagði maðurinn, Khaled Qazqouz.
Í fréttinni má einnig sjá ótrúlegt augnablik þegar tveggja ára dreng var bjargað úr rústum eftir að hann hafði verið innlyksa þar í þrjá daga.