Veður

Aldrei jafn kalt í janúar á þessari öld

Bjarki Sigurðsson skrifar
Það þurftu margir að glíma við sama vandamál og eigendur þessara bíla núna í janúar, að moka bílnum úr stæði.
Það þurftu margir að glíma við sama vandamál og eigendur þessara bíla núna í janúar, að moka bílnum úr stæði. Vísir/Vilhelm

Janúarmánuðurinn sem var að líða er sá kaldasti á Íslandi á 21. öldinni. Þá hafa ekki verið færri sólskinsstundir í Reykjavík síðan árið 1977. Aðeins 2,5 sólskinsstundir mældust á Akureyri í janúar. 

Þetta kemur fram í yfirliti um tíðarfar í janúar 2023 sem Veðurstofan tók saman. Þar segir að fyrri hluti mánaðarins hafi verið einstaklega kaldur, sérstaklega á vestari helming landsins. Á landsvísu var mánuðurinn sá kaldasti á þessari öld. 

Þetta var kaldasti janúar á öllum spásvæðum vestari helming landsins, að undanskildum Vestfjörðum. Einn vestfirskur janúarmánuður hefur verið kaldari en þessi sem var að líða. 

Meðalhiti (t) í janúar 2023 á nokkrum stöðvum. Einnig má sjá vik miðað við meðalhita janúar 1991 til 2020 (vik 30) annars vegar og 2013 til 2022 (vik 10) hins vegar í °C, ásamt röðun meðalhita mánaðarins í samanburði við aðra janúarmánuði frá því að mælingar hófust.

Úrkoma í janúar var 74,2 millimetrar í Reykjavík og 42,4 millimetrar á Akureyri. Mest var úrkoman á Höfn í Hornafirði, 133,9 millimetrar. Reykvíkingar fengu þrjá morgna án snjós en Akureyringar einungis einn. 

Í Reykjavík mældust 46,8 sólskinsstundir í mánuðinum sem er 24,3 stundum yfir meðallagi. Aðeins þrisvar sinnum frá upphafi mælinga hafa mælst færri sólskinsstundir í janúar í höfuðborginni, síðast árið 1977. Á Akureyri mældust 2,5 sólskinsstundir í mánuðinum, en það er fjórum stundum undir meðallagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×