Orri og félagar stálu sigri gegn Arendal Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. febrúar 2023 18:50 Orri Freyr og félagar eru sex stigum á eftir toppliði Kosltad. https://www.ostlendingen.no/ Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í norska meistaraliðinu Elverum unnu dramatískan eins mark sigur gegn Arendal í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-32.
Fyrir leikinn var Elverum átta stigum á eftir toppliði Kolstad og því ljóst að liðið þurfti á sigri að halda til að halda veikri von um deildarmeistaratitilinn á lífi. Liðið byrjaði vel og skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins, en eftir það fór að halla undan fæti og heimamenn í Arendal tóku öll völd á vellinum. Heimamenn náðu mest sjö marka forskoti í stöðunni 15-8, en staðan var 17-12 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Gestunum í Elverum gekk brösulega að brúa bilið í síðari hálfleik. Liðið náði að minnka muninn niður í tvö til þrjú mörk í nokkur skipti, en misstu heimamenn jafn harðan fram úr sér aftur. Liðið minnkaði muninn í tvígang niður í eitt mark undir lok leiksins og náðu að jafna á lokamínútunni. Elverum fékk svo vítakast á seinustu sekúndum leiksins og liðið tryggði sér dramatískan eins marks sigur þegar leiktíminn var liðinn, 31-32. Elverum situr nú í öðru sæti deildarinnar með 22 stig eftir 15 leiki, sex stigum á eftir Íslendingaliði Kolstad sem trónir á toppnum með fullt hús stiga. Arendal situr hins vegar í sjöunda sæti með 13 stig.
Norski handboltinn Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Þór - ÍBV 1-0 | Gott sem felldu Eyjamenn Íslenski boltinn Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Fram - Valur | Getur Fram haldið sigurgöngunni áfram? FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Sjá meira